Innlent

Kristilegir leiðtogar á einkaþotu skoða aðstæður á Íslandi

Jakob Bjarnar skrifar
Eiríkur svarar engum skilaboðum og því eru ekki nákvæmar upplýsingar fyrirliggjandi um erindi hinna stöndugu gesta hans. Einkaþota þeirra er að fara af landi brott.
Eiríkur svarar engum skilaboðum og því eru ekki nákvæmar upplýsingar fyrirliggjandi um erindi hinna stöndugu gesta hans. Einkaþota þeirra er að fara af landi brott.
Kristilegir útsendarar Trinity Broadcasting Network, sem er stærsta kristilega fjölmiðlafyrirtæki heims, eru nú staddir á Íslandi. Þeir eru sérlegir gestir Omega – kristilegrar sjónvarpsstöðvar. Ekki er vitað nákvæmlega hvað þeir eru að vilja á Íslandi, en talsmenn Omega verjast allra frétta.

Umsvif Trinity Broadcasting Network eru veruleg. Um er að ræða alþjóðlegt fjölmiðlafyrirtæki en höfuðstöðvar TBN eru í Costa Mesa í Kaliforníu. Og víst er að um verulega stöndugt fyrirbæri er að ræða, enda ferðast útsendarar TBN um á einkaþotum. Einkunnarorð þeirra eru: „TBN is the world's largest religious network, delivering the Christian message of hope around the globe“.

Samkvæmt heimildum Vísis hefur þotan verið á Reykjavíkurvelli nú í nokkra daga en áætlað er að hún fari af landi brott nú uppúr hádegi.

Vísir hefur ítrekað reynt að ná tali af Eiríki Sigurbjörnssyni, sjónvarpsstjóra Omega, bæði í dag og í gær, en án árangurs. Hann svarar engum skilaboðum, og mun hann ekki vera með farsíma. Guðmundur Örn Ragnarsson, sem var fyrir svörum hjá Omega, staðfesti að menn á vegum TBN væru gestir Omega en vildi að öðru leyti engar upplýsingar gefa. Var ekki betur á honum að skilja en hann teldi sig, og kristilega starfsemi almennt, brennda vegna umfjöllunar fjölmiðla – sem Guðmundi Erni sýnist andsnúnir kristilegu starfi.

Ísland hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu, meðal annars vegna Panama-skjalanna og í kjölfarið hefur predikarinn Steve Anderson, í babtistakirkjunni Faithful Word, beint sjónum sínum hingað og gefið íslensku samfélagi heldur nöturlegar einkunnir, svo sem „bastarðaþjóð“ og „femínistahelvíti“. Hann telur engan vafa á því leika að Íslendingar séu á villigötum.

Hvort hér sé um vísbendingu að ræða þess efnis að til standi að setja aukinn kraft í kristilegt starf á Ísland – eða ekki... um það eru engar upplýsingar fyrirliggjandi að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×