Glamour

Kristen Stewart var töffari Cannes-hátíðarinnar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Kristen Stewart hefur svo sannarlega verið með góða innkomu á kvikmyndahátíðina í Cannes. 

Þó að myndirnar sem hún er að leika í og er að kynna hafa fengið blendnar móttökur er fataval hennar yfir hátíðina til fyrirmyndar. Þá er það mál manna að Kristen hefur sagt fatareglum glamúrhátíðarinnar stríð á hendur og lætur prinsessukjólana vera að sinni.

Stutt mínipils, pinnahælar með mjórri tá, strigaskór, leðurjakki, rauðar varir og svört sólgleraugu er þemað í stíliseringu leikkonunnar sem skartar ljósu hári og svartri rót til að kóróna heildarlúkkið. 

Glamour gefur henni titilinn töffara Cannes í ár - meira svona!

Í svörtu pilsi og stuttermabol frá Kurt Geiger.
Stuttur hvítur kjóll og rauðmáluð augu.
Silfurskór, gullkjóll og sólgleraugu - getur ekki klikkað.
Gegnsætt sítt pils og svart/hvítir strigaskór.
Smart og settlegt.
Mínipils og stuttur leðurjakki.
Flatbotna og rokkaralegt.

Tengdar fréttir






×