Viðskipti innlent

Kristbjörg Edda nýr forstjóri Kaffitárs

Atli Ísleifsson skrifar
Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir.
Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir.
Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir hefur tekið við starfi forstjóra Kaffitárs af Aðalheiði Héðinsdóttur sem hefur haldið utan um framkvæmdastjórn fyrirtækisins frá stofnun 1990.

Aðalheiður mun taka við stjórnarformennsku í félaginu, stöðu sem Kristbjörg Edda gegndi áður.

„Það er komið að því að ég láti daglegan rekstur frá mér og einbeiti mér af meiri krafti að kaffimenningunni sjálfri og þróun hennar. Kaffidrykkja hefur breyst gríðarlega frá því að Kaffitár var kynnt til leiks. Fyrirtækið hefur þróast í samræmi það,“ segir Aðalheiður.

Í tilkynningu segir að Kristbjörg Edda hafi síðast starfað sem forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Men and Mice ehf. undanfarin tvö ár.

„Áður var hún forstöðumaður markaðssviðs Símans. Hún starfaði hjá Össuri í ellefu ár og gegndi þar ýmsum stjórnunarstörfum. Hún var meðal annars framkvæmdastjóri markaðssviðs fyrir Evrópu og framkvæmdastjóri vörustjórnunar. Þá hefur Kristbjörg Edda einnig sinnt ráðgjöf og kennslu á sviði vörustjórnunar og nýsköpunar. Á starfsferli sínum hefur hún einnig búið í Hollandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum.“

Kristbjörg Edda segist þekkja Kaffitár vel og viti hvers það er megnugt. „Þar liggja mikil tækifæri á sístækkandi innlendum markaði og ég hlakka til að fá að takast á við daglegan rekstur félagsins, kynningarmálin og sjá félagið njóta enn frekar afrakstur frábærrar frumkvöðlastarfsemi Aðalheiðar,“ segir Kristbjörg Edda.

Kristbjörg Edda er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskólanum í Árósum og Háskóla Íslands. Hún er einnig með BA-gráðu í hagfræði og mannfræði frá Háskóla Íslands.

Kaffitár rekur sjö kaffihús á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ og nú þegar eitt Kruðerí Kaffitárs á Nýbýlavegi í Kópavogi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×