Heilsa

Kremjum óléttutabúin

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Ég hef fjórum sinnum orðið ólétt en ég á aðeins tvö börn. Ég hef einu sinni misst fóstur og einu sinni farið í fóstureyðingu. Það er, af alls konar ástæðum, ótrúlega erfitt að skrifa þetta opinberlega en samt þykir mér það svo nauðsynlegt.

Ef það er eitthvað sem ég vil afreka á mínum starfsferli þá er það að létta á tabúum og þau eru ansi mörg í tengslum við þungun.

Það er tabú að tala um að reyna að eignast barn. Það er tabú að segja á stefnumóti að þig langi í börn. Það er tabú að segja of snemma (lesist, fyrir tólftu viku) frá þungun. Það er tabú að fara í fóstureyðingu. Það er tabú að vera ekki viss hver næstu skref eru þegar þvagið drýpur af prófinu. Það er tabú að vera óviss hver pabbinn er. Það er tabú að syrgja fóstur sem þú misstir. Það er tabú að fá aðstoð við frjóvgun. Það er tabú að ætla ekki í hnakkaþykktarpróf. Það er tabú að geta ekki getið barn. Það er tabú að vilja ekki eignast barn.

Það er tabú að móðurhlutverkið sé drulluerfitt.

Tengist þungun samförum?

Þetta er allt svo þungt og mikið tabú en ég segi stopp. Ég nenni þessu ekki. Mig langar að við getum leitað stuðnings til okkar fólks, hvort sem það er í gleði eða sorg.

Þungun er flókið líffræðilegt ferli sem setur allar tilfinningar í algjöra flækju og heldur viðkomandi í gíslingu þann tíma sem hún stendur yfir. Það þarf að taka alls konar ákvarðanir en samt má eiginlega ekki ræða þessar ákvarðanir við neinn nema í hálfum hljóðum, falið hvísl í heimahúsi.

Góð vinkona mín stakk því að mér að það gæti verið vegna þess að þetta tengist samförum á einn eða annan hátt.

Er það virkilega?

Þegar fólk ræðir barneignir, sér það þá fyrir sér hvort hún hafi verið ofan á eða hann fyrir aftan eða hvað? Það getur ekki verið svarið. Eða að hann hitti alltaf í vitlaust gat og þess vegna sé ekkert barn komið? Eða gera þau það ekki nógu oft? Eða það að þú sért kærulaus, kunnir ekki á getnaðarvarnir eða sért jafnvel, gúlp, drusla?

Hlustaðu af hlýju og kærleika

Fólk hefur alls konar skoðanir á öllum málum undir sólinni en þegar það kemur að þessu máli – nennirðu að sýna samúð, stuðning og skilning? Nennir þú að skilja fordóma þína eftir í eigin heila og hlusta með opnu hjarta og heyra það sem viðkomandi gengur í gegnum, hvort sem það er hamingja eða hjartasorg?

Og spyrðu.

Leyfðu þér að teygja þig eftir viðkomandi og spyrja hvernig honum eða henni líður og hver staðan er. Þegar við sýnum hvert öðru kærleika og þolinmæði þá verður heimurinn betri og við hættum að burðast með einhver óþarfa aukakíló skammar, samviskubits og sorgar.


Tengdar fréttir

Mamman drap rómantíkina

Síðan móðurhlutverkið bankaði uppá þá hefur rómantíkerin verið læstur niður í geymslu, hvað skal þá til bragðs taka?

Bankalán og blæðingar

Af hverju eru blæðingar tabú umræðuefni? Þú getur tekið þátt í því að brjóta tabúið

Fóstureyðing

Fóstureyðing er tabú málefni en það er mikilvægur réttur kvenna að geta farið í fóstureyðingu og það án þess að skammast sín.

Ólétta óskast

Langar þig að verða ólétt en ert óþolinmóð og langar að hámarka líkurnar á getnaði á sem skemmstum tíma? Ef svo er, lestu áfram.

Tími á milli barneigna

Þegar barn er fætt fer af stað klukka og nú velta margir foreldrar því fyrir sér hvort eiga skuli fleiri börn og þá hvenær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×