Innlent

Krefst þess að blaðamenn DV verði fangelsaðir

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Jóhann Páll, Þórey og Jón Bjarki.
Jóhann Páll, Þórey og Jón Bjarki.
Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, fer fram á að tveir blaðamenn DV verði dæmdir til fangelsisvistar vegna fréttarskrifa um hana í júní, í tengslum við lekamálið svokallaða.

Í stefnu sem Hulda Árnadóttir, lögmaður Þóreyjar, lagði fram í Hérðaðsdómi Reykjavíkur í dag kemur fram að farið sé fram á Jóhann Páll Jóhansson og Jón Bjarki Magnússon, blaðamenn DV, verði dæmdir til „ýtrustu refsingar fyrir brot á 234. og 235. gr. almennra hegingarlaga.“ Hámarksrefsing fyrir brot á þessum greinum er árs fangelsi.

Stefnan er tilkomin vegna fréttaskrifa þeirra tveggja um Þóreyju, sem tengjast lekamálinu svokallaða.

Í DV var því haldið fram að Þórey væri hinn svokallaði „starfsmaður B“, sem vísað er til í úrskurði Hérðasdóms Reykjavíkur, en kemur fram í úrskurðinum að lögreglan hafi rökstuddan grun um að þessi „starfsmaður B“ sé sá sem lak minnisskjali um Tony Omos, hælisleitanda.

Sama dag og greinin birtist sagði Reynir Traustason, þáverandi ritstjóri DV þetta við Vísi:

„Við gerðum klárlega mistök. Þórey er með stöðu grunaðs manns. Mistök okkar eru þau að rugla henni saman við starfsmann B – starfsmaður B er Gísli Freyr Valdórsson, hinn aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Við biðjum Þórey afdráttarlaust afsökunar á að hafa bendlað hana við þennan gjörning Gísla.“

Í stefnunni segir, um umrædda frétt:

„Í þeirri frétt DV, sem mál þetta snýst um, er staðhægt að stefnandi sé „starfsmaður B“ sem vísað er til í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Í frétt stefndu er því haldið fram og fjallað um með ítarlegum hætti að lögreglan hafi rökstuddan grun fyrir því að stefnandi hafi lekið áðurnefndum trúnaðargögnum til fjölmiðla í þeim tilgangi að sverta mannorð hælisleitenda frá Nígeríu. Ítarlega er síðan fjallað um með hvaða hætti stefnandi á að hafa brotið af sér með þessum hætti. Umfjöllunin, sem sett er fram sem staðreyndir, virðist öll byggja á þeirri röngu ályktun að stefnandi sé fyrrnefndur „starfsmaður B“. Virðist þessi ályktun vera dregin af stefndu án þessi að fyrir því liggi nokkur rök eða sönnunargögn.“

Í stefnunni eru tiltekin fimm ummæli sem birtust í DV á tímabilinu 20 til 23. júní á þessu ári og farið fram á að þau verði dæmd dauð og ómerk. Þórey fer einnig fram á þriggja milljón króna miskabætur auk tæpri milljón króna til að kosta birtingu dóms í málinu í Fréttablaðinu og DV.

Jóhann Páll Jóhannsson, blaðamaður DV, var í viðtali í útvarpsþættinum Harmageddon í morgun. Þar baðst hann afsökunar á þessum mistökum. „Þetta voru mjög alvarleg mistök og við báðumst afsökunar, samdægurs, á þeim og sendum út afsökunarbeiðni, sérstakafrétt, sérstaka tilkynningu á alla fjölmiðla landsins. En hvað um það, Þórey ætlar vissulega að stefna okkur.“ Jóhann sagði samt margt í stefnunni ekki rétt og kallaði það staðlausa stafi.


Tengdar fréttir

Hanna Birna ber vitni í málinu

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra er á meðal þeirra sem kvödd verða til vitnis í máli ríkissaksóknara á hendur Gísla Frey Valdórssyni.

Ráðherra biðst undan dómsmálum

Innanríkisráðherra hefur farið fram á að vera leystur undan skyldum sínum sem ráðherra dómsmála meðan ákæra gegn Gísla Frey Valdórssyni er til meðferðar hjá dómstólum.

Þórey sögð með réttarstöðu grunaðs manns

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, er sögð vera sú sem lak umdeildum minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos.

Hanna svarar í dag

Innanríkisráðherra veitir umboðsmanni Alþingis upplýsingar um meint afskipti af rannsókn Lekamálsins.

Þórey í mál við DV

Alvarleg ósannindi í umfjöllun DV varðandi hennar þátt í leka minnisblaðsins um hælisleitandann Tony Omos.

Þórey stefnir blaðamönnum DV

Aðstoðarmaður innanríkisráðherra hefur falið lögmanni að birta Jóni Bjarka Magnússyni og Jóhanni Páli Jóhannssyni stefnu vegna ærumeiðandi ummæla og grófra aðdróttana í hennar garð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×