Innlent

Krefst helmings af eignum Kaupþings

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vincent Tchenguiz vill yfir 430 milljarða frá Kaupþingi, Grant Thornton og fleiri aðilum.
Vincent Tchenguiz vill yfir 430 milljarða frá Kaupþingi, Grant Thornton og fleiri aðilum. vísir/daníel
Krafa Vincents Tchenguiz á slitastjórn Kaupþings, Grant Thornton og tengda einstaklinga nemur meira en helmingi af eignum þrotabúsins.

Eins og fram kom í breskum fjölmiðlum í gær hefur Tchenguiz stefnt endurskoðunarfyrirtækinu Grant Thornton, slitastjórn Kaupþings, Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni, meðlimi slitastjórnarinnar, og fleiri aðilum.

Krafa Vincents nemur 2,2 milljörðum punda eða um 430 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag. Samkvæmt árshlutauppgjöri Kaupþings námu eignir búsins þann 30. júní síðastliðinn hins vegar um 789 milljörðum íslenskra króna.

Kröfurnar í bú Kaupþings nema 2.793 milljörðum króna. Þetta þýðir að krafa Tchenguiz nemur um fimmtán prósentum af heildarkröfum í bú Kaupþings.

Málið er höfðað fyrir breskum dómstólum vegna tjóns sem Tchenguiz varð fyrir í tengslum við rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar Serious Fraud Office á honum vegna meintra efnahagsbrota. Mál SFO var fellt niður.

Tchenguiz telur að Grant Thornton, Kaupþing og starfsmenn þeirra beri ábyrgð á tilhæfulausri rannsókn á hendur sér. Auk áðurnefndra aðila hefur Tchenguiz höfðað mál á hendur Stephen Akers og Hossein Hamedani sem eru hluthafar og starfsmenn Grant Thornton.

Málsókn Tchenguiz byggist á því að þessir aðilar hafi unnið saman að því að fá SFO til að rannsaka hann í þeirri von að það leiddi til ógildingar á 1,6 milljarða punda kröfu hans á Kaupþing banka.

Kaupþing sendi seint í fyrrakvöld frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að hvorki þrotabúið né Jóhannes Rúnar Jóhannsson slitastjórnarmaður hafi fengið sendar upplýsingar um kröfu Tchenguiz á hendur þeim.

„Þrátt fyrir að upplýsingar um mögulegar kröfur og málaferli hafi verið sendar fjölmiðlum, þá hafa hvorki Kaupþing né Jóhannes Rúnar fengið upplýsingar eða gögn um kröfurnar og er þeim því ómögulegt að taka afstöðu til málsins í smáatriðum,“ segir í tilkynningu sem birt er á vef Kaupþings.

Fréttablaðið hefur ekki upplýsingar um það á þessari stundu hvort krafan verður forgangskrafa eða almenn krafa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×