Innlent

Krefjast þess að Ísland víki frá stóriðjustefnu sinni

Atli Ísleifsson skrifar
Hildur Knútsdóttir er einn skipuleggjenda Loftslagsgöngunnar, en sambærilegar göngur eru nú haldnar víða um heim.
Hildur Knútsdóttir er einn skipuleggjenda Loftslagsgöngunnar, en sambærilegar göngur eru nú haldnar víða um heim. Vísir/AFP og GVA

„Við munum lesa upp kröfur til íslenskra stjórnvalda á fundinum á eftir um að ríkisstjórn Íslands víki frá þessari stóriðjustefnu, því hún samræmist ekki þeim skuldbindingum sem Ísland hefur gert á alþjóðavettvangi um að draga saman losun gróðurhúsalofttegunda,“ segir Hildur Knútsdóttir rithöfundur og einn skipuleggjenda Loftslagsgöngu Reykjavíkur sem farin verður klukkan 14 í dag.

Hildur segir gönguna vera hluta af alþjóðlegri hreyfingu, People‘s Climate March og þegar hafa verið boðaðir yfir 2.700 viðburðir í dag og í gær í 160 löndum.

„Þetta er gert til að setja pressu á leiðtogana og sýna að fólk er að pæla í þessu, hefur áhyggjur og vill alvöru aðgerðir. Það er stór fundur í New York á þriðjudaginn sem Ban Ki-moon stendur fyrir og hann er búinn að bjóða þjóðarleiðtogum þangað. Hugsunin með fundinum er að liðka fyrir að samkomulag náist á loftslagsráðstefnu í París á næsta ári. Hann er að reyna að veita leiðtogum vettvang til að ræða málin í rólegheitum svo að almennilegt samkomulag náist á næsta ári,“ segir Hildur en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sækir fundinn í New York fyrir Íslands hönd.

Gangan hefst á Drekasvæðinu

Loftslagsganga Reykjavíkur fer frá Drekasvæðinu svokallaða (fyrir framan söluturninn Drekann á horni Kárastígs, Grettisgötu og Frakkastígs) sem leið liggur upp Kárastíg, niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Austurstræti og á Austurvöll. Þar verður haldinn kröfufundur og þess krafist að stjórnvöld virði skuldbindingar sínar í loftslagsmálum og taki af alvöru á málinu, „enda eru loftslagsbreytingar af mannavöldum stærsta ógn sem Ísland, og reyndar lífríki allt, stendur frammi fyrir,“ líkt og segir í tilkynningu.

Hildur mun flytja ræðu ásamt Halldóri Björnssyni, hópstjóra loftlagsrannsókna hjá Veðurstofunni og Finni Guðmundarsyni Olgusyni landfræðinema.

Veðrið í dag forsmekkur af því sem koma skal

Hildur segir það ef til vill viðeigandi að veðrið sé eins og það er í dag, „því með hækkandi hitastigi mun líklega verða hvassara og blautara hér á Íslandi. Þetta er því kannski forsmekkurinn af því sem koma skal ef ekkert verður að gert.“

Hildur segir alþjóðasamfélagið ekki hafa mörg ár til stefnu, sé ætlunin að afstýra mestu hörmungunum. „Þetta er málefni sem er afskaplega mikilvægt og það ríður á að gera eitthvað núna. Aukaverkun af auknum koltvísýringi er líka súrnun sjávar. Það ógnar mjög útgerð á Ísland, sem er einn aðalatvinnuvegur þjóðarinnar og við erum að stefna fiskinum í ofsalega hættu.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×