Viðskipti innlent

Krefjast nærri sextíu prósenta hækkunar

Snærós Sindradóttir skrifar
Flugumferðarstjórum hefur fækkað mjög lítið síðastliðin ár þrátt fyrir að flugumferð hafi margfaldast á sama tíma. Nú fara þeir fram á verulegar launahækkanir.
Flugumferðarstjórum hefur fækkað mjög lítið síðastliðin ár þrátt fyrir að flugumferð hafi margfaldast á sama tíma. Nú fara þeir fram á verulegar launahækkanir. Vísir/Vilhelm
Krafa flugumferðarstjóra í launadeilu sinni við Isavia er um nærri sextíu prósenta hækkun launa á næstu þremur árum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er þetta ástæða þess að ekkert þokast í deilunni og langt er í næsta fund. Heimildir Fréttablaðsins herma jafnframt að nú þegar séu meðallaun flugumferðarstjóra um ein milljón króna á mánuði, án yfirvinnu.

Kjaraviðræður flugumferðarstjóra hófust í október 2015. Yfirvinnubann flugumferðarstjóra hófst 6. apríl síðastliðinn. Röskun á flugi hefur verið töluverð en ekkert áætlunarflug var um Keflavíkurflugvöll á milli níu að kvöldi og sjö að morgni aðfaranótt föstudags.

Á fimmtudag sendi stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar harðorða ályktun gegn yfirvinnubanni flugumferðarstjóra. „Það gengur ekki upp að fámennir hópar launþega geti valdið jafn miklum vandræðum og haft ferðaþjónustuna og samgöngur til og frá landinu í hendi sér í kjarabaráttu sinni,“ segir í ályktuninni.

Þá segir: „Ímynd og orðspor Íslands sem áfangastaður fyrir ferðamenn er í húfi og mikilvægt að stöðugleiki ríki í samgöngum. Þá verður að eyða allri óvissu fyrir ferðaþjónustuna og landsmenn alla hið fyrsta.“

Í samtali við Fréttablaðið þann 12. apríl síðastliðinn sagði Sigurjón Jónasson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, stéttina standa frammi fyrir miklum landflutningum. Flugumferð hafi aukist um áttatíu prósent á meðan lítið hafi fjölgað í stéttinni. „Við erum fastir í klóm yfirvinnu og sjáum varla fjölskylduna yfir sumarið,“ sagði Sigurjón. Þá kom fram að félagið hefði látið gera samanburð á launum í 24 löndum og komist að þeirri niðurstöðu að íslenskir flugumferðarstjórar hefðu fimmta lakasta kaupmáttinn.

Skúli Mogensen, forstjóri flugfélagsins WOW air, sagði í samtali við Vísi á fimmtudag að það væri umhugsunarefni þegar ein stétt getur nánast lokað landinu.

Flugumferðarstjórar hafa boðað til þjálfunarbanns sem hefjast á sjötta maí næstkomandi. Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að vísa banninu til Félagsdóms. Enginn fundur er boðaður í kjaradeilunni fyrir 6. maí.


Tengdar fréttir

Röskun á 24 flugferðum um Keflavíkurflugvöll

Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra verður þjónusta á Keflavíkurflugvelli takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug frá klukkan 21 í kvöld til klukkan 7 í fyrramálið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×