Fótbolti

Krefja Balotelli um afsökunarbeiðni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Liverpool Echo
Staðarblaðið Liverpool Echo krafðist þess á forsíðu í dag að Mario Balotelli, framherji Liverpool, biðjist afsökunar á því að hafa skipst á treyjum við Pepe, varnarmann Real Madrid, í hálfleik í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í gær.

Balotelli hefur ekki náð sér á strik eftir að hann kom til Liverpool í sumar og átti dapran dag þegar Liverpool tapaði fyrir Evrópumeisturunum, 3-0, í gær. Honum var skipt af velli í hálfleik en hann og Pepe skiptust á treyjum þegar þeir gengu til búningsklefa.

Liverpool Echo segir að með því hafi hann brugðist stuðningsmönnum Liverpool og vegna þess verði hann að biðjast afsökunar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×