Viðskipti innlent

Kreddur frekar en hagsmunamat

Stjórnarmaðurinn skrifar
Stjórnarmaðurinn á erfitt með að gera upp hug sinn gagnvart ESB. Einn daginn vill hann inngöngu, þann næsta prísar hann sig sælan fyrir að Ísland er ekki statt á sömu vegferð og Grikkland, Írland, Spánn eða Portúgal.

Stjórnarmaðurinn er þó á því að ýmis rök hnígi að því að Íslendingar hefðu gott af því að undirgangast þann aga sem fylgir því að vera með alvöru mynt, og ekki síður komast í tæri við embættismannakerfi og vinnustaðla sem teljast faglegir – ekki gegnsýrðir af frændhygli eða sannfæringu lítt sigldra besservissera.

Hvað sem prívatpælingum um fýsileika ESB-inngöngu líður, þá skilur stjórnarmaðurinn ekki á hvaða vegferð ríkisstjórnin er með því að leggja slíka áherslu á viðræðu- slit. Yfirlýsingar ESB í tengslum við viðræðuhlé benda til þess að sam- bandið sé viljugt til að sýna þolin- mæði og langlundargeð gagnvart Íslandi. Frumkvæði að viðræðuslitum er því einhliða og séríslenskt.

Er það stjórnmálamönnum um megn að stunda kalt hagsmunamat og beita fyrir sig almennri skynsemi í stað þess að nálgast mál með kreddur og ályktanir flokksfélaga úr Skagafirði eða Garðabæ í farteskinu?

Hvað er annars unnið með viðræðuslitum annað en loka á „mikilvægan kost í efnahagsmálum, einkum hvað varðar framtíðarskipan peningamála“, svo vísað sé í ályktun viðskiptaráðs frá því síðasta vor?

Kviss bang hjá Bang og Olufsen

Stjórnarmaðurinn hefur alltaf verið mikill aðdáandi Bang & Olufsen raftækja.

Hann las því gaumgæfilega fréttir af því að félagið væri í söluferli. Samkvæmt forstjóranum er B&O of lítið til að lifa af á markaði í heljargreipum stærri aðila eins og Samsung og Sony.

B&O hefur átt í miklum vandræðum undanfarin ár og bréf félagsins hríðfallið. Fyrirtækið var þekkt fyrir hönnun sína og tók vöruhönnun því margfaldan þann tíma sem stærri keppinautar lögðu í slíkt. Síðustu ár hefur tækniþróun verið þannig að þótt B&O vörur séu fallegar, þá hefur tæknin þar að baki hreinlega verið orðin úrelt áður en tækin koma í verslanir.

Við þetta hafa bæst misheppnaðar vörur sem ná áttu hylli yngri kynslóða, auk þess sem markaðssókn félagsins í Kína sigldi í strand.Stjórnarmaðurinn vonar að B&O, eins og Ísland, rísi nú úr öskustónni, enda hvort tveggja vörumerki sem fengu hárin til að rísa á árunum fyrir hrun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×