Tónlist

Nina Kraviz mætir á klakann

Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar
Nina er vön að spila á risa stórum hátíðum og klúbbum.
Nina er vön að spila á risa stórum hátíðum og klúbbum. Visir/Carin Abdulla
Ein þekktasta tónlistarkonan í technoheiminum í dag, Nina Kraviz,  hefur tónleikaferð sína á skemmtistaðnum Paloma í miðbæ Reykjavíkur 15. maí. Um er að ræða fyrsta kvöldið í Trip records útgáfutónleikaferð hennar.

„Hún er vön að spila á risastórum klúbbum og tónlistarhátíðum, svo það er mjög sérstakt og skemmtilegt að hún velji að hefja túrinn hér. Þegar ég útskýrði fyrir henni hversu lítill staður Paloma væri þá varð hún bara enn spenntari fyrir vikið,“ segir Arnviður Snorrason, Addi eða betur þekktur sem EXOS.

Nina spilaði á Sónar hátíðinni í febrúar og hefur síðan þá komið þrisvar sinnum til landsins. „Hún er rosalega hrifin af Íslandi, íslensku techno og bara íslenskri tónlist og segist finna sterka tengingu við landið.“

Tónleikaferðin, sem hún kallar Trip líkt og útgáfufyrirtæki hennar, hefst eins og áður sagði hér. „Næstu Trip útgáfutónleikar verða síðan haldnir í Detroit, New York og Barcelona, svo þetta er magnað.“ 

Miðasala er í fullum gangi inn á tix.is og í verslununum Lucky Records og Mohawks í Kringlunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×