Handbolti

Kraus: Segi ekkert um dómgæsluna fyrir framan myndavélarnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Jens Schöngarth skoraði sex mörk fyrir Þjóðverja í dag.
Jens Schöngarth skoraði sex mörk fyrir Þjóðverja í dag. Vísir/Eva Björk
Þýskaland mátti þola sitt annað tap í röð er liðið laut í lægra hald fyrir Króatíu, 28-23, á HM í handbolta.

Fyrir vikið þurfa Þjóðverjar að vinna tapliðið úr viðureign Danmerkur og Slóveníu á morgun til að fá öruggt sæti í undankeppni Ólympíuleikanna 2016.

„Við litum á þennan leik sem úrslitaleik en það dugði því miður ekki til. Við fáum annað tækifæri á morgun og þann leik verðum við einfaldlega að vinna,“ sagði Michael Müller eftir leikinn.

„Við vildum ólmir vinna þennan leik en við mættum sterku króatísku liði og verðum bara að kyngja þessu tapi. Við byrjuðum vel, leiddum með þremur mörkum en þá byrjuðum við að kasta boltanum frá okkur og þeir refsuðu okkur grimmt,“ bætti Mimi Kraus við.

„Við verðum að finna einhverja leið til að ná áttum á ný fyrir leikinn á morgun því hann ætlum við að vinna, sama hvað.“

Kraus var spurður um dómgæsluna en svar hans var einfalt. „Ég segi ekkert um hana fyrir framan allar þessar myndavélar.“

Hinn ungi Paul Drux var niðurlútur í viðtölunum eins og samherjar hans. „Þetta var synd en Króatarnir nýttu sér okkar veikleika vel og refsuðu okkur með hraðaupphlaupum,“ sagði Drux og bætti við að menn væru orðnir þreyttir.

„Það hefur verið mikið spilað og leikurinn gegn Katar tók mikinn kraft úr okkur. En við verðum að jafna okkur fljótt fyrir leikinn á morgun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×