Sport

Krakkarnir í Klettaskóla skemmtu sér í tennis | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Stefán
Krakkarnir í Klettaskóla skemmtu sér vel á alþjóðlega tennisdeginum í gær en þau fengu þá kynningu á tennis í Tennishöllinni í Kópavogi.

Efnilegasta tennisfólk landsins leiðbeindu nemendum og leiddu leiki með þeim ásamt starfsmönnum skólans en þessi heimsókn er orðin árlegur viðburður.

Krökkunum er sérstaklega boðið í tilefni dagsins, og honum var síðan varið í þeirra þágu með alls kyns skemmtan.

Í lokin voru veitingar  í boði Tennissambandsins, sem að auki gaf skólanum gjafir, nýstárleg leiktæki og konfekt.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins mætti á staðinn og náði þessum myndum hér fyrir neðan.

Vísir/Stefán
Vísir/Stefán
Vísir/Stefán
Vísir/Stefán
Vísir/Stefán
Vísir/Stefán
Vísir/Stefán
Vísir/Stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×