Viðskipti innlent

Kraftaverkið í Leicester

stjórnarmaðurinn skrifar
Leicester City tryggði sér í fyrrakvöld sigur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sennilega er um að ræða eitthvert mesta og óvæntasta íþróttaafrek síðustu ára.

Enska deildin hefur nú um árabil verið einokunarvettvangur stærstu og ríkustu liðanna. Raunar hafa einungis sex lið unnið titilinn frá því að enska úrvalsdeildin var sett á laggirnar árið 1992. Að Blackburn Rovers undanskildum, sem á þeim tíma var fjármagnað af auðkýfingnum Jack Walker og það lið sem eyddi allra mestu í leikmannakaup, hafa einungis Lundúnaliðin Arsenal og Chelsea, og Manchester-liðin United og City unnið deildina.

Það vill nú líka svo til að þessi fjögur stórveldi greiða hæstu launin, og eyða mestu í leikmannakaup. Það er nokkuð sorgleg staðreynd að síðustu ár hefur sætaskipan í deildinni að vori nánast algerlega farið eftir því hverjir greiða hæstu launin. Með öðrum orðum, knattspyrnan á ekki lengur að vera leikur þar sem Davíð getur sigrað Golíat.Leikurinn var orðinn fyrirsjáanlegur.

Þetta hefur Leicester nú afsannað. Stjórnendur stærstu liðanna klóra sér á meðan í hausnum, en markaðsstjórar Úrvalsdeildarinnar hljóta að fagna eins og flestir hlutlausir knattspyrnuaðdáendur. Deildarkeppni sem hver sem er getur unnið selur sig nánast sjálf.

Líkurnar á sigri Leicester í upphafi tímabils voru 5.000 á móti 1 – sá sem veðjaði 200 íslenskum krónum fengi eina milljón í sinn hlut.

Nánast væri hægt að halda endalaust áfram að telja upp tölfræði sem sýnir fram á hversu ótrúlegt afrek þetta er: Louis Van Gaal, stjóri Manchester United, hefur eytt margfalt meiru í leikmannakaup á sínum tveimur árum hjá liðinu en Leicester í 132 ára sögu sinni. Leikmaður ársins, Riyad Mahrez, var keyptur á sem nemur einum vikulaunum hjá Wayne Rooney, stjórstjörnu United. Heildarlaunakostnaður Leicester er einungis fjórðungur þess sem hann er hjá Chelsea og tekjurnar réttur fjórðungur þess sem Man­chester United aflar.

Með öðrum orðum: fyrst Leic­ester getur unnið ensku úrvalsdeildina eru íslenska landsliðinu allir vegir færir á Evrópumótinu í sumar.

Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×