Sport

Kraftaverkamaðurinn Tim Tebow mættur til Philadelphia

Tebowing. Þessa stellingu var Tebow þekktur fyrir og hún kölluð Tebowing.
Tebowing. Þessa stellingu var Tebow þekktur fyrir og hún kölluð Tebowing. vísir/getty
Philadelphia Eagles tilkynnti í kvöld að félagið væri búið að semja við leikstjórnandann Tim Tebow.

Þetta eru óvæntustu tíðindi ársins í NFL-deildinni enda hefur hann ekki spilað í NFL-deildinni í þrjú ár. Það voru allir búnir að afskrifa hans feril í deildinni.

Chip Kelly, þjálfari Eagles, er þó ekki einn þeirra en hann virðist hafa trú á leikmanninum og vill gefa honum tækifæri.

Tölfræði Tebow í deildinni er ekki merkileg en hann gerði þó það sem öllu máli skipti er hann spilaði fyrir Denver Broncos. Hann vann leiki og gerði það oftar en ekki á ævintýralegan hátt.

Var gengið svo langt að tala um hinn trúaða Tebow sem Messías enda framkallaði hann fram hvert kraftaverkið á fætur öðru eins og lesa má um hér.

Ótrúlegar trúarlegar tilviljanir sem tengjast Tebow og leik hans voru einnig umfjöllunarefni í fjölmiðlum en lesa má um þær hér. Þær eru ansi magnaðar.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×