Innlent

Kraftaverkafolaldið Unnur Dís sefur í stofunni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Kraftaverkafolaldið Unnur Dís er nýjasta viðbótin við fjölskylduna á bænum Hvoli í Ölfusi. Þar sefur það á teppi í stofunni og er gefið að drekka á hálftíma fresti, allan sólarhringinn.

Á Hvoli tvö er nóg um að vera þessa dagana. Hjónin Erla og Bergþór eiga tíu mánaða stúlku og tæplega þriggja ára dreng, en lítil hryssa sem fæddist á föstudaginn er nýjasta viðbótin við fjölskylduna. Aflífa þurfti móðurina þegar hún var fullgengin en hún var orðin mjög veik. Kraftaverki líkast er að folaldið hafi komist lífs af.

Unnur Dís í stofunni.
„Þau koma og aflífa merina og sker hana með snöggum keisaraskurði sem tók aðeins þrjátíu sekúndur,“ segir Erla Björk Tryggvadóttir. „Hún ætlar sér að lifa. Hún er voða ákveðin. Hún er búin að braggast mikið þó hún sé voða veikburða. Við tokum einn dag í einu.“

Erla, maður hennar, systir og vinkonur skiptast á að vaka yfir folaldinu sem þarf að fá mjólk allan sólarhringinn. Mjólkandi hryssur eru ekki á hverju strái og því hafa þau eytt síðustu dögum í að keyra um alla sveit til að safna mjólk. Þegar við hittum þau í morgun höfðu þau fengið mjólk úr yfir tuttugu hryssum og voru að leggja af stað í nýjan leiðangur. 

„Við fórum um allar á sveitir og fá hjá ótrúlega góðu tengslaneti. Hestamenn hjálpa hver öðrum alltaf. Það er alveg á hreinu.“ 

Þegar vinafólk Erlu frétti af folaldinu komu þau með merina Lilju Dís að hvoli, en hún missti sitt folald fyrir einum og hálfum mánuði en mjólkar enn. Næstu daga verður unnið í því að kynna þær folaldið en það getur tekið einhvern tíma að leiða þær saman.

„Þannig að vonandi mun þetta virka. Við ákváðum að nefna hana í höfuðið á dýralækninum og hrossinu. Því heitir hún Unnur Dís,“ segir Erla og er bjartsýn á framhaldið hjá henni. „Það er svo mikil barátta í henni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×