Lífið

Kraftajötunn hellir úr skálum reiði sinnar vegna Pokémon-fíknar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frank er granítharður
Frank er granítharður
Kraftakarlinn Robert Frank er ekki beint sáttur við þá sem spila Pokémon Go leikinn í snjallsímum sínum. Frank er vel vaxinn aflraunamaður sem gjörsamlega missir sig á YouTube-rás sinni í garð Pokémon-þjálfara.

„Ég hélt að þetta myndi fjara út eftir einn eða tvo daga, en núna sé ég þetta allstaðar,“ segir Frank í myndbandi sem hann hefur deilt með fylgjendum sínum.

„Af hverju fer þetta lið ekki bara í venjulega líkamsræktarstöð!!! Í staðinn fyrir að fara í einhverju Pokémon stöð. Það er fokking mánudagur!! Og í dag er alþjóðlegur brjóstkassadagur,“ segir hann en myndbandið var tekið upp á mánudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×