Innlent

Krabbameinsfélagið fékk rúmlega eina milljón frá Orkunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Valgeir Baldursson, forstjóri Skeljungs og Ingvi Örn Ingvason, markaðsfulltrúi Skeljungs, afhenda Ragnheiði Orkulykilinn stóra.
Valgeir Baldursson, forstjóri Skeljungs og Ingvi Örn Ingvason, markaðsfulltrúi Skeljungs, afhenda Ragnheiði Orkulykilinn stóra.
Fyrir skömmu afhentu starfsmenn Skeljungs Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélagsins, afrakstur söfnunar Orkunnar í ár sem rennur til styrktar Bleiku slaufunnar.

Orkan hefur um árabil styrkt Bleiku slaufuna m.a. með sérstökum Orkulykli þar sem 1 kr. af hverjum seldum eldsneytislítra rennur til samtakanna. Í október hækkar sú upphæð í 2 kr. og í sama mánuði fer einnig fram bleikur ofurdagur þar sem 2 kr. af hverjum seldum eldsneytislítra, óháð greiðslumáta, renna til Bleiku slaufunnar.

1.153.432 kr. söfnuðust í ár og til að fagna þessum frábæra árangri ákváðu starfsmenn Skeljungs að bregða á leik og afhenda Ragnheiði upphæðina á risastórum Orkulykli í stað hefðbundinnar ávísunar.

„Stuðningur fyrirtækja og einstaklinga skiptir miklu máli fyrir starfsemi Krabbameinsfélagsins, ekki bara fjárhagslega heldur einnig við að koma skilboðunum á framfæri til almennings. Við erum mjög þakklát fyrir þennan stuðning sem okkur er sýndur“ segir Ragnheiður




Fleiri fréttir

Sjá meira


×