Íslenski boltinn

KR náði í stig á Selfossi og Berglind afgreiddi Aftureldingu | Úrslit kvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eva Núra Abrahamsdóttir með boltann í Árbænum í kvöld. Elín Svavarsdóttir  sækir að henni.
Eva Núra Abrahamsdóttir með boltann í Árbænum í kvöld. Elín Svavarsdóttir sækir að henni. Vísir/Ernir
Þrír leikir fóru fram í 7. umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Breiðablik og Fylkir unnu sína leiki og KR-konur náðu í stig á Selfossi.

Selfoss klikkaði á víti og fullt af dauðafærum og varð að sætta sig við tvö töpuð stig í 1-1 jafntefli á heimavelli á móti nýliðum KR.

KR vann sinn fyrsta leik í síðustu umferð og nú sóttu KR-stelpur óvænt stig á Selfoss. KR-konur voru yfir í 57 mínútur í leiknum. Selfossliðið vann sex leiki í röð í deild og bikar en hefur aðeins náð í eitt stig út úr síðustu tveimur deildarleikjum sínum.

Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði Selfoss, klikkað á víti í upphafi leiks og Hulda Ósk Jónsdóttir kom KR síðan í 1-0 á 20. mínútu. Þannig var staðan fram á 77. mínútu þrátt fyrir stórsókn heimastúlkna. Magdalena Anna Reimus jafnaði þá metin eftir sendingu frá Donnu Kay Henry. Það urðu lokatölur leiksins.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði þrennu fyrir Fylki í 4-0 sigri á Aftureldingu en þetta var fyrsti sigur Fylkiskvenna síðan í fyrstu umferðinni í maí þegar liðið vann Selfoss. Berglind Björg skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins en staðan var 1-0 í hálfleik.

Breiðablik hélt sigurgöngu sinni áfram í Pepsi-deild kvenna í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á Þór/KA á Kópavogsvellinum. Fanndís Friðriksdóttir, markahæsti leikmaður deildarinnar, skoraði fyrra markið úr víti og lagði síðan upp það síðara fyrir félaga sinn Telmu Hjaltalín Þrastardóttur. Bæði mörk Breiðabliks komu í fyrri hálfleik.  

Þetta er fimmti deildarsigur Blika í röð og þær eru nú með sjö stiga forskot á toppnum en Stjarnan og Selfoss geta minnkað það í leikjum sínum í þessari umferð.



Úrslit og markaskorarar í Pepsi-deild kvenna í kvöld:

Breiðablik - Þór/KA 2-0

1-0 Fanndís Friðriksdóttir, víti (19.), 2-0 Telma Hjaltalín Þrastardóttir (40.)

Fylkir - Afturelding 4-0

1-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (41.), 2-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (69.), 3-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (74.), 4-0 Sandra Sif Magnúsdóttir (83.)

Selfoss - KR 1-1

0-1 Hulda Ósk Jónsdóttir (20.), 1-1 Magdalena Anna Reimus (77.).

Upplýsingar um markaskorara í leikjum kvöldsins eru fengnar frá fótbolti.net.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×