Íslenski boltinn

KR mun hafna tilboði AIK í Hauk Heiðar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Haukur Heiðar í leik með KR.
Haukur Heiðar í leik með KR. Vísir/Vilhelm
Sænska liðið AIK frá Stokkhólmi gerði KR tilboð í bakvörðinn Hauk Heiðar Hauksson sem félagið ætlar að hafna. Þetta staðfesti Kristinn Kjærnested í samtali við Vísi í dag.

„Tilboðið var ekki áhugavert og því verður hafnað,“ sagði Kristinn í samtali við Vísi í dag en hann vissi ekki hvort að Svíarnir ætluðu að gera meira í áhuga sínum á leikmanninum.

Hann hefur þó orðið var við mikinn áhuga á Hauki Heiðari. „Það eru engin önnur tilboð komin en við finnum að það eru margir aðilar áhugasamir.“

Haukur Heiðar er 23 ára gamall Akureyringur sem kom til KR frá KA fyrir tímabilið 2012. Hann hefur veirð fastamaður í liði KR og kom við sögu í 26 leikjum í deild og bikar í sumar og skoraði í þeim eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×