Körfubolti

KR-ingar voru bara einum sigri frá metinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Darrel Keith Lewis hefur hjálpað nýliðum Tindastóls mikið í vetur en þessi 38 ára gamli leikmaður kom á Krókinn fyrir þessa leiktíð.
Darrel Keith Lewis hefur hjálpað nýliðum Tindastóls mikið í vetur en þessi 38 ára gamli leikmaður kom á Krókinn fyrir þessa leiktíð. Vísir/Ernir
Nýliðar Tindastóls hafa stimplað sig inn í Dominos-deildina með sögulegum krafti og síðasta liðið til sökkva í Síkinu voru sjálfir Íslandsmeistarar KR-inga sem fóru tómhentir heim á fimmtudagskvöldið.

Spánverjanum Israel Martin tókst það sem engum íslenskum þjálfara hafði tekist í tæpa þrettán mánuði – að vinna deildarleik á móti KR. Stólarnir hafa nú unnið alla sjö heimaleiki sína í deildinni í vetur og þó að þessi hafi verið sá minnsti (í tölum) þá var hann sá stærsti.

Möguleikar Tindastóls á deildarmeistaratitlinum eru kannski ekki miklir enda KR með fjögurra stiga forskot og betri innbyrðisstöðu en sigur sem þessi sýnir það svart á hvítu hversu erfitt það verður fyrir hin liðin að heimsækja Síkið í úrslitakeppninni í vor.

Valur Ingimundarson er farsælasti leikmaður og þjálfari Tindastóls í úrvalsdeild karla enda sá leikmaður sem hefur skorað flest stig fyrir félagið í úrvalsdeild 3.143) og sá þjálfari sem hefur stýrt Stólunum til sigurs í flestum leikjum í úrvalsdeild (99).

Stólarnir gáfu honum kannski aðeins til baka í fyrrakvöld þegar þeir enduðu 23 leikja sigurgöngu KR-inga og komu í veg fyrir að Vesturbæingar tækju metið af Njarðvíkurliðinu sem Valur þjálfaði fyrir rúmum nítján árum.

Njarðvíkingar unnu 24 deildarleiki í röð frá lokum október 1994 til byrjunar október 1995. Valur stýrði Njarðvíkurliðinu 1994-95 og þar með í 23 af þessum 24 leikjum.

Hann og Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, eru nú þeir þjálfarar sem hafa unnið flesta deildarleiki í röð (23) en Hrannar Hólm tók við Njarðvíkurliðinu af Val sumarið 1995 og stýrði liðinu í 24. og síðasta sigurleiknum. Valur var þá búinn að gera Njarðvíkinga að Íslandsmeisturum tvö ár í röð en gerðist síðan þjálfari í Danmörku.

Það vill þannig til að það voru líka Tindastólsmenn sem stöðvuðu met-sigurgönguna í byrjun október 1995 en Tindastóll vann þá þriggja stiga sigur á Njarðvík í Ljónagryfjunni, 88-85.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×