Íslenski boltinn

KR-ingar vilja Kristinn Frey í skiptum fyrir Hólmbert

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hólmbert hefur ekki náð sér á strik í sumar.
Hólmbert hefur ekki náð sér á strik í sumar.
Svo gæti farið að Hólmbert Aron Friðjónsson, leikmaður KR, yfirgefi liðið í félagaskiptaglugganum en hann hefur ekki náð sér á strik fyrir KR-inga í sumar og ekki enn náð að skora mark.

KR-ingar fengu Jeppe Hansen frá Stjörnunni á dögunum og rennir það stoðum undir þær kenningar að Hólmbert fari frá KR.

Samkvæmt heimildum íþróttadeildar 365 hafa Valsmenn reynt að fá Hólmbert á Hlíðarenda.

Sömu heimildir herma að KR-ingar vilji fá Kristinn Frey Sigurðsson í skiptum fyrir Hólmbert. Kristinn Freyr er einn besti leikmaður Vals og hefur leikið nokkuð vel í sumar. Valsarar þurfa aftur á móti nauðsynlega á framherja að halda. Félagaskiptaglugginn lokar 31. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×