KR-ingar leigja Stefán Loga til Lilleström Ómar Þorgeirsson skrifar 31. júlí 2009 11:00 Stefán Logi Magnússon. Mynd/Arnþór
KR og norska félagið Lilleström hafa náð samkomulagi um leikmannaskipti á markvörðunum Stefáni Loga Magnússyni og Andre Hansen en aðeins er þó um leigusamning að ræða út yfirstandi tímabil. Þjálfarinn Henning Berg hjá Lilleström hefur lengi haft augastað á Stefáni Loga en KR-ingar vildu vitanlega ekki missa leikmanninn á miðju sumri án þess að fá neitt í staðinn og því kemur U-21 árs landsliðsmarkvörður Norðmanna til KR auk þess sem Norðmennirnir greiða í milli og Kristinn Kjærnested formaður knattspyrnudeildar KR er ánægður með samninginn. „Við erum búnir að vita lengi af áhuga þeirra á Stefáni Loga en það má segja að þeir hafi byrjað að þreifa á þessu um leið og þeir seldu Björn Helge Riise til Fulham. Þá fá þeir smá peninga en við vildum ekki fara að lána Stefán Loga eða neitt slíkt og þá gerðu þeir okkur hörku tilboð og við tókum því. Þetta hentar bara öllum aðilum mjög vel og við í KR og Stefán Logi erum mjög ánægðir með þessa niðurstöðu. Við sjáum svo bara til hvað gerist í haust," segir Kristinn. Stefán Logi leikur með KR gegn Val í bikarnum og svo seinni leikinn gegn Basel í Evrópudeild UEFA og eftir það er gert ráð fyrir því að Hansen taki við og berjist um byrjunarliðsstöðuna við Atla Jónasson fyrir leikinn gegn FH í Pepsi-deildinni. „Við erum náttúrulega ekki að renna blint út í sjóinn með Hansen því við höfum fín sambönd í Noregi bæði í gegnum Loga Ólafsson og Rúnar Kristinsson. Hansen var nýlega valinn í U-21 árs landsliðshóp Noregs og hann er stór og sterkur og er eiginlega bara svona copy-paste útgáfa af Stefáni Loga," segir Kristinn á léttum nótum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Fótbolti Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings