Íslenski boltinn

KR-ingar elstir og með fæsta uppalda í Pepsi-deildinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Pálmi Rafn Pálmason er einn af eldri leikmönnum KR en hann er uppalinn á Húsavík.
Pálmi Rafn Pálmason er einn af eldri leikmönnum KR en hann er uppalinn á Húsavík. vísir/bára
KR er með lang elsta liðið í Pepsi-deild karla í fótbolta miðað við spilaðar mínútur þegar tólf umferðum er lokið og þá spilar liðið á fæstum uppöldum leikmönnum.

Þetta hefur fótboltaáhugamaðurinn og Húsvíkingurinn Leifur Grímsson tekið saman en hann birtir reglulega skemmtilega tölfræði um íslenskan fótbolta og þá helst Pepsi-deildina.

KR-liðið er með meðalaldurinn 29,3 ár og er ríflega ári eldra FH-liðið sem er með 28,2 ára meðalaldur. Íslandsmeistarar Vals eru í þriðja sæti með 28,1 árs meðalaldur og Stjarnan rétt á eftir en meðalaldur Garðabæjarliðsins miðað við spilaðar mínútur eru 28 ár.

Valsliðið er gamalt en nær árangri.vísir/bára

Gamlir oftast góðir

Það sést greinilega að almennt er hár meðalaldur lykillinn að árangri í Pepsi-deildinni en Valur og Stjarnan eru í tveimur efstu sætum deildarinnar, á sama stað og liðin enduðu í fyrra.

FH-liðið hafnaði í þriðja sæti í fyrra og er í fjórða sæti núna með þennan háa meðalaldur en hann er ekki að gera mikið fyrir KR-liðið sem er í sjötta sæti eftir að enda síðasta mót í fjórða sæti og missa af Evrópu í fyrsta sinn í áratug.

Blikarnir eru yngsta liðið í toppbaráttunni en meðalaldur Kópavogsliðsins er 25,9 ár. Þrátt fyrir það sem að margir kannski halda er það ekki yngsta liðið en fjögur lið eru yngri miðað við spilaðar mínútur.

Fylkir, Víkingur, Fjölnir og ÍBV eru öll fyrir neðan Blikana en Eyjamenn eru yngstir. Meðalaldur ÍBV miðað við spilaðar mínútur er 24,7 ár.

Það vantar ekki hjartað í Fylkisliðið enda flestir uppaldir.vísir/bára

Uppaldir á botninum

Þegar kemur að uppöldum leikmönnum tróna Fylkismenn á toppnum er varðar notkun þeirra. Aftur er miðað við spilaðar mínútur. Fylkismenn nota 86 prósent heimamenn, tíu prósent leikmenn sem eru íslenskir en koma frá öðrum liðum og aðeins fjögur prósent Fylkisliðsins eru erlendir leikmenn.

Keflavík er í öðru sæti en samt sem áður vel á eftir Fylkisliðinu. Keflavík hefur notast við 71 prósent heimamenn og 27 prósent erlenda leikmenn. Það er ekki alltaf samasem merki milli þess að spila á uppöldum og ná árangri en þetta eru tvö neðstu lið Pepsi-deildarinnar.

KR-ingar eru neðstir á listanum með aðeins fjögur prósent heimamenn miðað við spilaðar mínútur. KA-liðið er skammt á undan með ellefu prósent, Grindavík 17 prósent og Valsmenn 18 prósent.

Grindavík er með hæst hlutfall erlendra leikmanna eða 49 prósent, þar á eftir koma ÍBV með 44 prósent, FH með 41 prósent og Víkingur með 38 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×