Fótbolti

KR deildarmeistari

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Systurnar Embla og Mist fögnuðu með liði sínu í dag
Systurnar Embla og Mist fögnuðu með liði sínu í dag mynd/heimasíða KR
KR tryggði sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í fótbolta í dag með 2-1 sigri á Þrótti á Valbjarnarvelli í úrslitaleik úrslitakeppni 1. deildar.

Bæði lið höfðu tryggt sér sæti í Pepsí deild kvenna á næstu leiktíð og því fyrst of fremst leikið upp á heiðurinn í Laugardalnum í dag.

Anna Birna Þorvarðardóttir kom Þrótti yfir á 17. mínútu en fimm mínútum síðar jafnaði Margrét María Hólmarsdóttir metin og staðan í hálfleik 1-1.

Margrét María var aftur að verki á níundu mínútu seinni hálfleiks og tryggði KR sigurinn og um leið deildarmeistaratitilinn.

Markaskorarar eru fengnir af urslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×