Íslenski boltinn

KR bjargaði sér á ótrúlegan hátt | Selfoss féll

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fylkiskonur fagna en Selfyssingar voru niðurlútir eftir leik.
Fylkiskonur fagna en Selfyssingar voru niðurlútir eftir leik. Vísir/Anton
KR og Fylkir náðu að bjarga sæti sínu í Pepsi-deild kvenna eftir ótrúlegan viðsnúning í leik ÍA og KR uppi á Skipaskaga.

Cathrine Dyngvold og Rachel Owens komu ÍA í 2-0 forystu í fyrri hálfleik og var þá útlit fyrir að KR myndi falla úr deildinni, enda í fallsæti ásamt ÍA fyrir lokaumferðina.

ÍA var fallið úr Pepsi-deild kvenna fyrir umferðina í kvöld.

KR-ingar náðu þó að snúa leiknum sér í vil. Jordan O'Brien skoraði tvívegis, þar af sigurmark KR á 77. mínútu. Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði einnig fyrir KR í leiknum.

Fylkir og Selfoss gerðu markalaust jafntefli á sama tíma. Úrslitin uppi á Skaga þýddu að Selfoss þurfti á sigri að halda í Árbænum en þar náðu gestirnir ekki að skora.

Fylkir var sömuleiðis að berjast fyrir lífi sínu í deildinni og tap hefði þýtt að Árbæningar hefðu fallið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×