Kostnaður við heilbrigðisþjónustu hefur aukist um eitt og hálft prósent á ári frá hruni, þrátt fyrir mikinn niðurskurð. Ráðast þarf í umfangsmiklar breytingar á heilbrigðisgeiranum til að auka hagkvæmni segir starfshópur velferðarráðuneytisins.
Starfshópur velferðarráðuneytisins um heilbrigðiskerfið kynnti niðurstöður sínar í dag enn hann fékk meðal annars sænskan hóp sérfræðinga frá einu fremsta ráðgjafafyrirtæki heims, Boston Consulting Group, með sér í lið við að greina skipulag og stöðu heilbrigðiskerfisins.
Í skýrslu hópsins kemur meðal annars fram að ástæða fyrir auknum kostnaði í heilbrigðisþjónustu þrátt fyrir niðurskurð eftir hrun sé aðallega vegna aukinna lyfjagreiðslna og hjúkrunarkostnaðar á meðan kostnaður við spítalaþjónustu hefur dregist saman.
Þá veltir hópurinn fyrir sér hvort að fjöldi heilbrigðisumdæma og sjúkrastofnana sé hugsanlega of mikill. Gerðar eru athugasemdir við fjölda sjúkrabíla sem nýtast misjafnlega og að nýting fæðingarþjónustu og skurðaðgerða á níu stöðum á landinu sé óhagkvæm.Þá sé mikið misræmi í framboði öldrunarþjónustu.
Einnig eru athugasemdir gerðar við að ekki sé til staðar samtengd sjúkraskrá fyrir allt landið og engin þjónustustýring sé til staðar sem veldur því að fólk fer frekar til sérfræðilækna en heimilislækna.
Í tillögum starfshópsins er lagt til að koma á samtengdri rafrænni sjúkraskrá fyrir allt landið. Hópurinn vill einnig endurskipuleggja greinina að verulegu leyti. Endurskoða notkun hjúkrunarrýma og sjúkrarýma og staðsetningar á þjónustu um allt land með tilliti til bættra samgangna. Endurskipuleggja heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu og samræma framboð öldrunarþjónustu á landsvísu.
„Bættar samgöngur, breyting á fólksfjölda og annað hefur auðvitað áhrif á ákveðnum svæðum og við erum að aðlaga okkur að því og á sama tíma viljum við hafa mjög öfluga spítala þannig við þurfum ekki að sækja mikla þjónustu erlendis og allt kostar þetta. En ég held að við getum alveg náð þessu, það er ekki spurning um það heldur bara að standa saman um að gera þetta," segir Guðbjartur Hannesson, velferðaráðherra.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Montt er 86 ára og var fundinn sekur um það, 10. maí, að hafa staðið fyrir morðum sem herdeildir hans frömdu á að minnsta kosti 1,771 meðlimi Maya Ixil þjóðarinnar.
Meira
Samkvæmt óstaðfestum heimildum hafa þau Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokki og Eygló Harðardóttir Framsókn verið nefnd sem hugsanleg ráðherraefni; Illugi sem menntamálaráðherra og Eygló sem utanríkisr...
Meira
Konur þurfa að leggja miklu harðar að sér til að njóta virðingar og komast í stjórnunarstöður innan lögreglunnar, segir lögreglukona á höfuðborgarsvæðinu. 35 af 36 aðalvarðstjórum landsins eru karlmen...
Meira
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðað til fundar til að samþykkja ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn. Verið er að boða miðstjórn Framsóknar saman einnig. Ný ríkisstjórn flokkanna ...
Meira
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sækir í dag Alþjóðlegan leiðtogafund, Global Leadership Summit, sem Viðskiptaskóli Lundúna, London Business School, og sjónvarpsstöðin CNN efna til.
Meira
Miðstjórn Framsóknarflokksins og flokksráð Sjálfstæðisflokksins hafa enn ekki verið boðuð til fundar til að ræða væntanlegt ríkisstjórnarsamstarf. Stjórnarmyndunarviðræður flokkanna halda áfram í dag.
Meira
Kennslanefnd kemur saman í dag vegna líkfundar í Kaldbaksvík á Ströndum nú um helgina. Notast verður við bein og tennur til að reyna að bera kennsl á viðkomandi.
Meira
Heimir Björn Janusarson, umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, segir að þó nokkuð sé um að fólk láti setja duftker í garðinn mætti vera enn meira gert af því.
Meira