Margrét S. Björnsdóttir
sat í nefndum er unnu tillögur að lögum um fjárreiður flokka og frambjóðenda
Margrét S. Björnsdóttir skrifar:
Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stjórnmálastarfsemi voru loks samþykkt lög þar að lútandi árið 2006. GRECO-nefnd Evrópuráðsins (um pólitíska spillingu) hafði ítrekað sent íslenskum stjórnvöldum aðfinnslur og Jóhanna Sigurðardóttir flutt fjölda þingsályktunartillagna um málið. Þeir sem sáu um fjársafnanir Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks höfðu barist gegn slíkum lögum í nafni stjórnarskrárákvæða um tjáningar- og félagafrelsi, en gáfust loks upp.
Markmið laganna frá 2006 er að koma í veg fyrir spillingu, að fjársterkir aðilar geti ráðið frambjóðendum, niðurstöðum kosninga og málefna, en rannsóknir staðfesta áhrif fjármagns, þó fleira komi til.
Nú er uppi ný staða sem þarfnast umræðu. Síðastliðin 15 ár hafa hagsmunaaðilar í æ ríkari mæli blandað sér í kosningabaráttu, stillt flokkum og frambjóðendum upp við vegg í aðdraganda kosninga og þannig skert lýðræðislegan hlut almennings og þeirra kjörnu fulltrúa. Síðastliðna mánuði hefur þetta náð nýjum hæðum með milljónatuga auglýsingaherferð hagsmunaaðila gegn breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Um stjórnmálastarfsemi hagsmunaaðila gilda ekki lög um upplýsingaskyldu eða hámark á framlög. Í Bandaríkjunum kljást stjórnmálamenn við sama vanda. Þar hafa frá 1970 gilt lög um upplýsingaskyldu og takmarkanir á fjárframlög til flokka og frambjóðenda. En fjársterkir aðilar hafa fundið hjáleiðir og eyða í dag (í gegnum svonefnd Super PACs og 501c4 samtök) hærri upphæðum til áhrifa á stjórnmálastarfsemi en flokkarnir og frambjóðendur sjálfir. Upphæðum sem hafa margfaldast á síðustu árum. Að baki eru einstaklingar, fyrirtæki eða samtök. Þar eins og hér er ekkert hámark, en loðin upplýsingaskylda, sem auðvelt er að sniðganga. Þingmenn demókrata hafa án árangurs reynt að takmarka þetta, gegn atkvæðum repúblikana. (Economist 25.2.2012). Mikilvægt er að ræða hvernig bregðast skal við þessu, þó ljóst sé að setning reglna um þetta sé snúnari en um fjárreiður flokka og frambjóðenda. Jafnljóst er að við viljum ekki á Íslandi lýðræði og skoðanamyndun sem ræðst af fjármagni.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Herdís Þorvaldsdóttir lést á Landsspítalanum þann 1. apríl síðastliðinn. Þá um nóttina lofuðum við barnabörnin henni að halda áfram baráttunni fyrir gróðurvernd og uppgræðslu landsins.
Meira
Þessi grein varpar ljósi á aukið mikilvægi þess að almenningur sé meðvitaður um þær hættur sem leynast á netinu og hvaða ráð einstaklingar hafa til að öðlast aukið öryggi.
Meira
Ég var frekar áttavilltur unglingur. Hvað mig langaði að verða þegar ég yrði stór var ekki mikið sem ég spáði í. Sérstaklega eftir að það varð ljóst að ég yrði seint atvinnumaður í knattspyrnu.
Meira
Með úrskurði frá 21. mars. sl. staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að Sorpa byggðarsamlag hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið samkeppnislög og bær...
Meira
Fráfarandi ríkisstjórn var ríkisstjórn almannahagsmuna sem hafði jöfnuð og velferð að leiðarljósi og stuðlaði markvisst að hvoru tveggja, fyrst og fremst með traustri efnahagsstjórn sem náði stjórn á ...
Meira
Um langt árabil hafa Álftnesingar þurft að aka að og frá heimilum sínum um gamlan hættulegan veg, Álftanesveginn, og alltof mörg okkar hafa lent í óhöppum og slysum á veginum eða komið að slíkum gegnu...
Meira
Samráðsvettvangur um aukna hagsæld á Íslandi kom saman í þriðja sinn 8. maí sl. en vettvangurinn var settur á laggirnar í janúar 2013. Stofnun vettvangsins má rekja til skýrslu Mckinsey ráðgjafafyrirt...
Meira
"Starfsmenn leikskóla Reykjavíkur með lögheimili utan Reykjavíkur með börn í vistun hjá dagforeldri fá greidda hærri niðurgreiðslu.“ Svona hljóðar byrjun á breytingu á reglum skóla og frístundar...
Meira
Það er ekki að ástæðulausu sem almennir borgarar taka upp pennann og skrifa um heilbrigðismál á þann hátt sem gert hefur verið undanfarna mánuði og ár.
Meira
Næringarspítalar eru skrýtnir staðir. Lífshættulega vannærð börn liggja um allt og halda ekki höfði. Sum börnin enduðu hér eftir að hafa drukkið óhreint vatn heima sem olli endurteknum magakveisum og ...
Meira
Eitt af þeim samfélagslegu markmiðum sem ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar setti í sóknaráætlun til ársins 2020 er að hlutfall Íslendinga á aldrinum 20-66 ára sem ekki hafa lokið formlegu nám...
Meira
1970 var merkilegt ár í íslenskri virkjana- og náttúruverndarsögu, ár Laxárdeilunnar og greinar Nóbelskáldsins, "Hernaðurinn gegn landinu“, sem er enn í fullu gildi. Stjórn Laxárvirkjunar notaði...
Meira
Ísland hefur nú gert fríverslunarsamning við Kína og er það af hinu góða. Hins vegar breytir það litlu varðandi þá staðreynd að Evrópumarkaðurinn er og verður langmikilvægasti markaður fyrir íslenskar...
Meira
Vegagerðin og Garðabær hafa skilað innanríkisráðherra greinargerð vegna nýs Álftanesvegar um Gálgahraun. Í greinargerðinni er því hafnað að hægt sé að koma til móts við óskir Hraunavina og annarra nát...
Meira
Ansi víða þar sem ég hef verið og komið á undanförnum árum og mánuðum á Íslandi hefur mér fundist beinlínis óþægilegt að finna hvað fólk er oft hikandi við að segja skoðanir sínar.
Meira
Sem barn lærði ég muninn á að fá lánað og að fá gefins. Þegar ég lánaði bestu vinkonu minni hjólaskautana mína þá vildi ég fá þá alveg eins til baka. Og ekki bara annað stykkið heldur bæði því ég var ...
Meira
Árið 2009 lét Jóhanna Sigurðardóttir undan þrábeiðni forystu Samfylkingarinnar og tók við tröllauknustu viðfangsefnum stjórnmála lýðveldistímans. Til hennar var leitað vegna heiðarleika hennar, heilin...
Meira
Í dag, 23. maí, rennur út frestur til að gera athugasemdir við nýtt deiliskipulag um Austurvöll, Fógetagarð og Ingólfstorg. Ég hvet þig, lesandi góður, til að senda inn athugasemdir við téð skipulag a...
Meira
Orð formanns Framsóknarflokksins um að staða og horfur í ríkisfjármálum væru verri en áður var talið féllu í grýttan jarðveg. Fráfarandi ráðherrar og stuðningsmenn fóru beint í skotgrafirnar og töluðu...
Meira
Eftirfarandi viðbrögð hefur skemmtikraftur líklega aldrei þurft að heyra eftir að viðskiptavinur spyr hann hvað hann rukki fyrir vinnu sína: "Hva, þú getur nú gert þetta ódýrt fyrir okkur, við erum að...
Meira
Upp úr árunum frá 1970 hófst skeið óðaverðbólgu á Íslandi og frá þeim tíma hefur verðbólga verið viðloðandi íslenskt efnahagslíf eins og ólæknandi sjúkdómur. Verðbólgan hefur skotið rótum í þjóðfélagi...
Meira
Margumbeðnar og löngu tímabærar endurbætur á Hverfisgötu hefjast innan tveggja mánaða. Stór hluti götunnar verður lagfærður í tveimur áföngum frá júlí og fram í október: Fyrst frá Vitastíg vestur að F...
Meira
Á vef landlæknisembættisins er að finna marga nafnalista yfir þá sem fengið hafa starfsleyfi í heilbrigðisþjónustu m.a. ljósmæður, lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga og aðrar stéttir sem starfa í heil...
Meira
Stuttu fyrir Hrunið skrifaði ég pistil í bók og velti fyrir mér hvort það væri tilviljun að skopmyndirnar af Múhameð spámanni hefðu birst í einu stærsta dagblaðinu í Danmörku á sama tíma og Dansk Folk...
Meira