Viðskipti innlent

Kostakjör við höndina

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Lógó Hotels.com
Lógó Hotels.com
Smáforrit Hotels.com er hentug leið til þess að finna og bóka gistingu, heima og erlendis. Í boði eru sértilboð, nákvæm lýsing á þeim kostum sem eru í boði og umsagnir notenda.

Uppfletting á gistingu í boði á Suðurlandi sýnir þó að ekki er um tæmandi yfirlit að ræða yfir gistingu á svæðinu.

Þá hefur heyrst af því að appið hafi komið að góðum notum hjá fólki á ferðalagi í Asíu, sem þegar á staðinn var komið gat fundið, með hjálp forritsins, næturdvöl á fimm stjörnu hóteli á gjafverði.

Appið er hægt að fá fyrir margvísleg snjalltæki og síma, hvort heldur tækin keyra á stýrikerfum frá Windows, Android eða Apple.

Umsagnir notenda í smáforritaverslun Android, Google Play, eru mestanpart jákvæðar, en þar fær appið 4,5 stjörnur af 5 mögulegum.

Í útgáfunni fyrir Windows-síma truflar helst að notendur þurfa að skrá sig inn í hvert sinn sem appið er ræst til þess að fá yfirlit yfir pantanasögu og síðustu aðgerðir.

Í appi Hotels.com er hægt að kalla fram lista yfir sértilboð á gistingu í nágrenni við notandann.Mynd/Skjáskot





Fleiri fréttir

Sjá meira


×