Innlent

Kosningaþátttakan það sem er mest spennandi

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir nýjustu skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sýna nokkuð óbreytt ástand meðal frambjóðenda.

„Þessi mynd er nú ansi föst í sessi verður að segjast. Þó svo að við sjáum nokkra hreyfingu er þetta ekki gjörbreyting á stóru myndinni,“ segir hann.

„Fréttirnar eru þær að Guðni sígur svolítið. Nokkuð sem maður gat átt von á með frambjóðanda sem var með svona gífurlega mikið fylgi. Halla stekkur upp en þó munar þrjátíu prósentum á þeim sem er geinvænlegur munur þegar tveir dagar eru til kosninga,“ segir Eiríkur.

„Mesta spennan í þessu forsetakjöri núna er kosningaþátttakan sjálf á kjördag. Hún gæti breytt þessari mynd. Ef að kosningaþátttaka er lág gæti önnur niðurstaða komið úr kjörkössunum er blasir við núna.“

Guðni Th. Jóhannesson nýtur stuðnings 49 prósenta þeirra sem afstöðu taka í nýrri könnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis.

Forskot Guðna er enn nokkuð öruggt en hann er með 30 prósenta forskot á næsta frambjóðanda.

Halla Tómasdóttir er með stuðning 19,6 prósenta þeirra sem afstöðu taka í könnuninni og bætir við sig tíu prósentustigum frá könnuninni í síðustu viku.

Þá segjast 12,9 prósent ætla að kjósa Andra Snæ Magnason og 12,4 prósent Davíð Oddsson. Samkvæmt könnuninni minnkar fylgi við Andra Snæ um 0,2 prósent milli vikna en það er innan vikmarka. Fylgi við Davíð minnkar um 3,7 prósent. 

Sturla Jónsson mælist núna með 2,5 prósent, en aðrir eru með minna fylgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×