Innlent

Kortafyrirtæki og bankar greiða 1.620 milljónir í sekt

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Sektargreiðslur kortafyrirtækja og banka á undanförnum árum nema vel á þriðja milljarð króna.
Sektargreiðslur kortafyrirtækja og banka á undanförnum árum nema vel á þriðja milljarð króna. visir/pjetur
Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, auk greiðslukortafyrirtækjanna Valitors og Borgunar, hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið vegna rannsóknar á samkeppnishömlum á greiðslukortamarkaði.

Samkvæmt sáttinni leggjast fyrirtækin í umfangsmiklar aðgerðir til að efla samkeppni. Að auki hafa þau fallist á að greiða samtals 1.620 milljónir í sekt.

Brot fyrirtækjanna snúa að framkvæmd við ákvörðun milligjalda og við veitingu vildarpunkta á árunum 2007 til 2009. Sú háttsemi að Valitor og Borgun ákvæðu milligjald fyrir hönd bankanna þótti ganga gegn ákvæðum samkeppnislaga.

Í sáttinni felst að hámark verður sett á milligjald auk þess sem Valitor og Borgun skilja á milli færslu- og útgáfuþjónustu. Að auki verður horfið frá því að viðskiptabankarnir eigi greiðslukortafyrirtækin í sameiningu, en það ferli er hafið nú þegar með sölu Landsbankans á hlut sínum í fyrirtækjunum.

Jóhannes ingi kolbeinsson
„Við komum inn á markaðinn árið 2002 og síðan þá hafa fyrirtækin reynt að bregða fyrir okkur fæti,“ segir Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem kvörtun fyrirtækisins leiðir til sáttar en sektargreiðslur áðurnefndra fyrirtækja í umræddum málum nema vel á þriðja milljarð króna.

„Endurbæturnar sem sæst er á eru löngu tímabærar og ótrúlegt að ekki hafi verið lagst í þær fyrr. Vonandi verða þær til þess að við þurfum ekki að kvarta oftar,“ segir Jóhannes. Þá staðfestir hann að rekið sé skaðabótamál fyrir dómstólum vegna þess tjóns sem fyrirtæki hans hafi orðið fyrir.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í málinu verður birt í upphafi næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×