Körfubolti

Körfuboltamenn lúbarðir af 30 manns

Myndin tengist fréttinni ekki á nokkurn hátt fyrir utan að þarna er verið að spila körfubolta.
Myndin tengist fréttinni ekki á nokkurn hátt fyrir utan að þarna er verið að spila körfubolta. vísir/getty
Þrír bandarískir körfuboltakappar máttu þakka fyrir að halda lífi eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás á bar í Argentínu.

Allir spila þeir fyrir lið Libertad sem er topplið argentínsku deildarinnar.

Allt varð vitlaust er þeir sóttu bar í landinu. Einn körfuboltakappanna fór þá að vernda kærustu sína sem varð fyrir áreitni á staðnum.

Þá varð fjandinn laus og fyrr en varði var 30 manna hópur farinn að berja á Bandaríkjamönnunum sem þóttu heppnir að hafa sloppið lifandi af barnum.

Körfuboltakapparnir eru illa haldnir með innvortis áverka, kjálkabrot og fótbrot meðal annars.

„Ég skil ekki hvernig svona getur gerst? Þeir eru stálheppnir að vera á lífi eftir svona barsmíðar," sagði þjálfari þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×