Körfubolti

Körfuboltakvöld: Var leyniskytta í Mustad-höllinni?

Það mætti halda að það hafi verið leyniskytta á áhorfendapöllunum í leik Grindavíkur og Snæfells sem fór fram í Mustad-höllinni á fimmtudaginn.

Grindavík vann stórsigur í leik liðanna, en í leiknum gerðist skondið atvik. Árni Elmar Hrafnsson bar þá upp boltann og gabbaði Magnús Má Ellertsson það mikið að hann datt í jörðina.

Félagarnir í Körfuboltakvöldi, þeir Kjartan Atli Kjartansson, Kristinn Friðriksson og Hermann Hauksson, höfðu hrikalega gaman af þessu og úr varð þetta skemmtilega innslag sem má sjá hér að ofan.

Sjón er sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×