Körfubolti

Körfuboltakvöld: Upphitunarþáttur fyrir Domino's deild kvenna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Domino's deild kvenna hefst á morgun með fjórum leikjum.

Þar ber hæst leikur Skallagríms og Íslandsmeistara Snæfells í Borgarnesi. Þessum liðum var spáð tveimur efstu sætunum í árlegri spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða liðanna í Domino's deild kvenna.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 á morgun og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.

Á sama tíma hefjast þrír aðrir leikir. Nýliðar Njarðvíkur fá Val í heimsókn, Grindavík og Haukar mætast í Mustad-höllinni og Stjarnan sækir Keflavík heim.

Hitað verður upp fyrir tímabilið í Domino's deild kvenna í sérstökum upphitunarþætti af Domino's Körfuboltakvöldi. Þar fara Kjartan Atli Kjartansson, Hildur Sigurðardóttir og Ágúst Björgvinsson yfir tímabilið sem framundan er.

Þátturinn hefst klukkan 20:00 og verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport HD. Einnig er hægt að horfa á þáttinn í heilu lagi í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×