Körfubolti

Körfuboltakvöld: Um hvað er lukkutröll Skallagríms að hugsa þarna?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Skallagrímur á nú úrvalsdeildarlið á ný bæði í Domino´s deild karla og Domino´s deild kvenna. Borgnesingar hafa boðið upp á glæsilega umgjörð í kringum leiki sína í byrjun móts.

Kjartan Atli Kjartansson og strákarnir í Körfuboltakvöldi sýndu frá leik Skallagríms og KR í síðasta þætti sínum.

Skallagrímsmenn spiluðu sinn fyrsta heimaleik í Domino´s deild karla í annarri umferð og þar eignuðust Borgnesingar kannski nýja stjörnu.

Nýja stjarnan var klædd í Skallagrímsbúning en fékk þó ekki að spila í leiknum enda ekki leikmaður liðsins. Í spilaranum hér fyrir ofan þá fara strákarnir í Körfuboltakvöldi yfir tilþrif lukkudýrs Borgnesinga í leiknum á móti Íslandsmeisturunum á fimmtudagskvöldið.

Nú er bara stóra spurningin: Um hvað er lukkutröll Skallagríms að hugsa þarna?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×