Körfubolti

Körfuboltakvöld: Siggi Ingimundar steig trylltan dans í Síkinu

Anton Ingi Leifsson skrifar

Þátturinn Körfuboltakvöld var að vanda á dagskrá Stöðvar 2 Sport í gærkvöldi, en þátturinn er uppgjörsþáttur eftir hverja umferð í Dominos-deild karla og kvenna.

Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, var alveg brjálaður út í Val Orra Valsson, en hann braut á sér undir lok Tindastóls og Keflavíkur í Síkinu í fyrradag þegar Keflavík var að reyna minnka muninn. Í kjölfarið steig Sigurður trylltan dans á hliðarlínunni.

„Við eigum eftir að sjá þetta á öllum danshúsum það sem eftir er núna. Hann læsir hnjánum og ég veit ekki alveg hvað hann gerir. Þetta á ekki að vera hægt," sagði Hermann Hauksson, einn spekingurinn í þættinum.

Körfuboltakvöld skoraði svo á Sigurð að láta á Youtube leiðbeiningar að "The Sig" dansinum, en ekki er líklegt að Sigurður verði við því.

Þetta stórkostlega myndband má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×