Körfubolti

Körfuboltakvöld: Sá besti frá upphafi er mættur til leiks | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson stimplaði sig inn í Domino's deild karla með látum í gær.

Jón Arnór lék þá sinn fyrsta leik með KR í vetur og fyrsta leikinn í efstu deild á Íslandi í rúm sjö ár þegar KR-ingar unnu ótrúlegan endurkomusigur, 87-94, á Tindastóli.

Jón Arnór átti ekki lítinn þátt í sigrinum en hann skoraði 33 stig, þar af 14 stig á síðustu þremur mínútum leiksins.

Líkt og flestir héldu sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds ekki vatni yfir frammistöðu Jóns Arnórs í gær.

„Menn geta virkað svona ryðgaðir í fyrsta leik. Einmitt!“ sagði Hermann Hauksson.

„Hann sýndi bara hver er maðurinn,“ bætti Kristinn Friðriksson við.

Hermann segir engum blöðum um það að fletta að Jón Arnór sé besti íslenski körfuboltamaðurinn frá upphafi.

„Hann er besti körfuboltamaður sem Ísland hefur alið. Það er bara þannig, það er enginn þarna,“ sagði Hermann.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×