Körfubolti

Körfuboltakvöld: Kári komst á þrennuvegginn | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kári Jónsson átti frábæran leik þegar Haukar unnu öruggan sigur á FSu, 78-103, í Domino's deild karla í gær.

Kári skoraði 26 stig, tók 11 fráköst og gaf 10 stoðsendingar og kom sér þannig á þrennuvegginn svokallaða í Domino's Körfuboltakvöldi en hann er þar í afar góðum félagsskap.

Strákarnir í Körfuboltakvöldi töluðu afar vel um Kára í þætti gærkvöldsins.

„Hann var frábær, á öllum sviðum í þessum leik eins og tölurnar gefa til kynna. Það er alltaf einhver stóísk ró yfir öllu sem hann gerir og þetta virkar svo átakalaust,“ sagði Hermann Hauksson um Kára.

Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×