Körfubolti

Körfuboltafjölskyldan safnar peningum fyrir KKÍ

Strákarnir fagna hér EM-sætinu.
Strákarnir fagna hér EM-sætinu.
Íslenska körfuknattleikslandsliðið tekur þátt í lokakeppni stórmóts í fyrsta skipti næsta sumar og það er víst ekki ókeypis.

Menn sem kalla sig Körfuboltafjölskylduna hafa einsett sér að safna 6-7 milljónum króna hjá körfuknattleiksunnendum í von um að fleiri fylgi í kjölfarið.

Búið er að senda fjölmörgum mönnum, og konum, innan hreyfingarinnar tölvupóst þar sem átakið er kynnt.

Póstinn má sjá hér að neðan.

"Það þarf einbeittan vilja og getu til að komast áfram úr undankeppni karlalandsliða Evrópu í körfuknattleik. Landsliðinu okkar tókst það í fyrsta sinn í sögu íslensks körfuknattleiks með frábærum leik sínum fyrir fullu húsi áhorfenda í Laugardalshöllinni. Breyttir tímar og ný viðhorf - ný tækifæri blasa við.

VILTU VERA MEÐ?

Nú þurfum við – körfuboltafjölskyldan – að sýna og sanna að við mætum öll til leiks með því að styðja við landsliðið okkar með myndarlegum fjárhagslegum stuðningi. Ef við gerum það ekki verða fáir til þess - ef við gerum það myndarlega munu margir fylgja okkar fordæmi!

Hópur 30 fyrrum körfuknattleiksmanna, landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn íslensks körfuknattleiks stóðu að fundi 16. september til að ræða hvernig afla megi 6–7 milljónum króna meðal okkar til að styðja við þátttöku okkar stráka í keppninni.

Með því að afla stuðningsmanna sem vilja skuldbinda sig í 10 mánuði til að greiða 2.000–5.000 kr. á mánuði með greiðslukorti eða greiðsluseðlum getum við með sameiginlegu átaki náð ofangreindu takmarki. Þessara stuðningsmanna þarf að afla á næstu 3-4 vikum og hyggst hópurinn styðja við átakið með góðri kynningu í fjölmiðlum til þess að ná til fleiri landsmanna sem vilja leggja okkur lið.

Í viðhengi er eyðublað til fjölfjöldunar og dreifingar innan vébanda félags þíns þar sem stuðningsaðilar fylla út umbeðnar upplýsingar. Áhersla er á að ná til einstaklinga og einnig þeirra sem eftir atvikum geta látið fyrirtæki í sinni eigu standa straum að greiðslum.

Að öðru leyti skal ekki leitað til fyrirtækja þar sem við viljum ekki trufla fjáraflanir félaganna okkar.

KKÍ mun bjóða einum aðila úr hópi þessara styrktaraðila fría ferð og gistingu á mótið.

TÖKUM NÚ STRAX MYNDARLEGA Á ÞVÍ AÐ SAFNA UNDIRSKRIFTUM OG STYÐJA VIÐ STRÁKANA OKKAR Á EM.

STUÐNINGUR OKKAR VERÐUR ÞEIM MIKIL HVATNING!

Nánari upplýsingar gefa eftirtaldir aðilar:

Einar Bollason 860-7000 · einar@ishestar.is

Kolbeinn Pálsson 821-1433 · kolbeinnp@gmail.com

Gunnar Gunnarsson 892-6274 · gunngu@simnet.is

Helgi Ágústsson · helgiandheba@gmail.com

Jón Otti Ólafsson · ljoso7@simnet.is

Hannes S. Jónsson formaður KKÍ 698-7574 · hannes.jonsson@kki.is

Einnig er hægt að senda póst á kki@kki.is

Framkvæmdanefnd.




Tengdar fréttir

Íslendingar eru einu nýliðarnir á EM 2015

Íslenska körfuboltalandsliðið tryggði sér í kvöld sæti á Evrópumótinu á næsta ári en þetta er í fyrsta sinn sem körfuboltalandslið kemst í úrslitakeppni stórmóts.

EM haldið í Frakklandi, Þýskalandi, Króatíu og Lettlandi

Körfuknattleikssamband Evrópu staðfesti rétt í þessu að EM í körfuknattleik, Eurobasket, verður haldið í Frakklandi, Þýskalandi, Króatíu og Lettlandi næsta sumar. Úrslitin fara síðan fram í Lille í Frakklandi.

Utan vallar: Takk, Óli Rafns

Karlalandsliðið í körfubolta braut blað í íslenskri íþróttasögu á miðvikudagskvöldið þegar það komst á EM. Fyrrverandi forseti ÍSÍ á ekki lítinn þátt í því.

Þessar þjóðir verða með Íslandi á EM

Ísland verður meðal 24 þjóða sem keppa á Evrópumótinu í körfubolta á næsta ári en íslenska liðið verður meðal þátttakenda í fyrsta sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×