Viðskipti innlent

Kópavogur bíði með hraðhleðslustöðvar

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Eina hraðhleðslustöð ON í Kópavogir er við Smáralind.
Eina hraðhleðslustöð ON í Kópavogir er við Smáralind. vísir/gva
Gatnamálastjóri og umhverfisfulltrúi Kópavogs mæla með því að bærinn fjárfesti ekki strax í hraðhleðslustöðvum fyrir rafbíla og reki þær.

„Talið er að fýsilegasti kostur sveitarfélagsins sé að fylgjast vel með og meta aðstæður á komandi ári og miða við aðgerðir Orku náttúrunnar varðandi ákvörðunartöku um gjaldtöku á hraðhleðslustöðvum og uppbyggingu innviða hraðhleðslustöðva ásamt því að fylgjast með alheimsþróun á rafhleðslum og innviðum,“ segir í umsögn embættismannanna til bæjarráðs Kópavogs.

„Óvissustig á markaði er mikið og þá sérstaklega út af mjög örum breytingum og hraðri þróun á sviði rafbíla og innviða fyrir rafbíla,“ segja embættismennirnir. Fyrir Kópavogsbæ séu möguleikarnir í uppbyggingu og rekstri tvíþættir.

„Telst aðkoma sveitarfélagsins geta verið sú að reka hraðhleðslustöðvar eða bjóða upp á rekstur á hraðhleðslustöðvum á fyrirfram skilgreindum bílastæðum á bæjarlandi.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×