Innlent

Konurnar tíu ósáttar við niðurstöðu úttektar á Stígamótum og íhuga næstu skref

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Helga er enn að byggja sig upp eftir störf sín hjá Stígamótum og hefur verið óvinnufær í nokkurn tíma.
Helga er enn að byggja sig upp eftir störf sín hjá Stígamótum og hefur verið óvinnufær í nokkurn tíma. Vísir/skjáskot
Úttekt sem var gerð á starfsumhverfi í Stígamótum þykir sýna að traust, trúnaður og starfsánægja ríki meðal starfsfólks. Úttektin var gerð eftir að tíu konur stigu fram og sögðu einelti og ofbeldi ríkja á vinnustaðnum. Þær ætla að funda á morgun og íhuga næstu skref. Aldrei var sóst eftir að heyra þeirra hlið á málinu á meðan úttekt stóð yfir.

Í síðasta mánuði skrifaði Helga Baldvins Bjargardóttir um starf sitt hjá Stígamótum á facebooksíðu sína. Hún lýsti skorti á fagmennsku og ofbeldisfullum viðbrögðum stjórnenda þegar hún leyfði sér að gagnrýna vinnubrögðin.

Í kjölfarið stigu níu konur fram og sögðust hafa sambærilega reynslu af störfum hjá Stígamótum.

Um leið steig Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta og yfirmaður starfsmannamála, til hliðar en ásökunum um slæma stjórnarhætti er beint að henni. Úttekt var gerð á starfsháttum Stígamóta og niðurstaðan gerð opinber í vikunni: Að ekkert ami að starfsumhverfinu og Guðrún hafi tekið til starfa að nýju.

„Ég náttúrulega vonaðist til þess og við allar - þessar níu konur - að þau myndu vinna þetta faglega og tala við okkur og fá okkar sjónarhorn. En núna hefur komið í ljós að það var ekki vilji fyrir því og því munum við hittast á morgun og ræða næstu skref," segir Helga og býst hún við að hinar konurnar muni nú deila reynslu sinni af Stígamótum en hingað til hafa þær ekki viljað ræða það við fjölmiðla.

Helga segir Stígamót gerast sek um allt það sem þau gagnrýna meinta gerendur og aðstandendur þeirra fyrir.

„Þannig að þetta er afhjúpandi fyrir stöðuna. Í staðinn fyrir að hlusta á brotaþola og reyna að gera betur, þá fer allt í vörn og sagt að allt sé svo fínt."

Helga segist hafa fengið góð viðbrögð - og að margir virðist hafa sömu reynslu.

„En svo er líka ákveðin þögn. Feministar þegja, Kvennahreyfingin þegir. En ég bjóst við meira skítkasti þannig að það er alla vega ánægjulegt."


Tengdar fréttir

Tekur við sem talskona Stígamóta á ný

Guðrún Jónsdóttir mun taka aftur við hlutverki talskonu Stígamóta en hún steig til hliðar í síðasta mánuði á meðan fram fór sálfélagslegt áhættumat til að greina ástandið á vinnustaðnum.

Vonsvikin með rannsókn Stígamóta

"Það kemur mér ekki á óvart að hún hafi afgreitt þetta svona,“ segir Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir, fyrrverandi starfskona Stígamóta, um það að Guðrún Jónsdóttir muni taka aftur við hlutverki talskonu Stígamóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×