Innlent

Konur réðust á erlendan ferðamann

Lögreglan hafði í nógu að snúast á fimmtudagskvöld
Lögreglan hafði í nógu að snúast á fimmtudagskvöld

Tvær konur voru fluttar á slysadeild eftir átök í Bankastræti í fyrrinótt. Í fyrstu var talið að karlmaður hefði ráðist á þær en við yfirheyrslur yfir honum í gær kom í ljós að önnur kvennanna hafði ráðist á hann að tilefnislausu og slegið hann í höfuðið með flösku.



Konurnar hlutu minni háttar áverka þegar maðurinn, sem er bandarískur ferðamaður, varðist ofbeldi þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru konurnar undir áhrifum áfengis en ferðamaðurinn var allsgáður. Ekki hefur verið lögð fram kæra í málinu að svo stöddu.



Karlmaður var handtekinn fyrir gróft heimilisofbeldi sömu nótt í Breiðholti. Hann misþyrmdi fyrrverandi eiginkonu sinni og var hún flutt á slysadeild.

Mikið var um smápústra aðfaranótt föstudags og segir varðstjóri að þegar veður er gott er gjarnan nóg að gera hjá lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×