Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Fréttablaðið Aðsendar greinar 07. febrúar 2012 13:00
Konungshöllin í Stokkhólmi. Forsætisráðherrarnir hittast í borginni nú í vikunni til að ræða hvernig endurheimta má samkeppnishæfni landa sinna, tryggja atvinnu og hagvöxt.
Konungshöllin í Stokkhólmi. Forsætisráðherrarnir hittast í borginni nú í vikunni til að ræða hvernig endurheimta má samkeppnishæfni landa sinna, tryggja atvinnu og hagvöxt. Mynd/AFP
Níu forsætisráðherrar frá Bretlandi, Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum skrifar:
Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda á síðustu tveimur árum. Á fundum þessum höfum við einkum lagt áherslu á að ræða hvernig takast eigi á við efnahagsleg viðfangsefni, svo sem skuldsetningu banka og vaxandi fjárlagahalla. Sjaldan gefst tími til að horfa fram á veginn og ræða hvernig samfélögin geti búið sig undir viðfangsefni komandi tíma eða hvers konar langtíma stefnu við ættum að tileinka okkur til að tryggja börnum og barnabörnum okkar atvinnu, velsæld og sjálfbæran vöxt.

Á leiðtogafundi um framtíðarverkefni í norðanverðri Evrópu í Stokkhólmi dagana 8. og 9. febrúar næstkomandi bindum við vonir við að geta breytt þessu. Níu forsætisráðherrar frá Bretlandi, Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum hittast þar ásamt leiðandi sérfræðingum á nýrri tegund leiðtogafundar þar sem fylgt verður eftir fyrsta fundinum sem haldinn var í London fyrir ári. Með því að skiptast á hugmyndum og læra af reynslu hvers annars í kappsamlegum og frjálst flæðandi umræðum ætlum við að ræða hvernig endurheimta megi samkeppnishæfni landa okkar, tryggja atvinnu og þann hagvöxt sem velsæld okkar í framtíðinni hvílir á.

Ekki aðeins sameinar landfræðileg lega okkur heldur einnig trú okkar á framtak, nýsköpun og hagvöxt. Það á einnig við það starf sem skilar okkur sameiginlegum markaði, viðskiptasamningum við þá hluta heimsins þar sem vöxturinn er hvað mestur. Jafnframt gildir þetta um viðleitni okkar til að draga úr íþyngjandi regluverki.

En við höfum ekki árangur sem erfiði ef mikilvægur hluti þeirra sem geta unnið hafa ekki tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum. Af þeim sökum beinum við sjónum okkar á leiðtogafundinum í þessari viku sérstaklega að tveimur lykilverkefnum sem tryggt geta langtíma hagvöxt og samkeppnishæfni í löndum okkar:

Annars vegar hvernig fá megi konur í ríkari mæli til að stofna eigin fyrirtæki og gegna stjórnunarstöðum í fyrirtækjum. Hins vegar hvernig unnt verði að fá eldra fólk til að taka lengur þátt á vinnumarkaðnum í ljósi þeirra áskorana sem samfélög okkar standa frammi fyrir vegna breytinga á aldurssamsetningu.

Það var fremur undantekning en regla að konur væru á vinnumarkaði þótt ekki sé horft lengra en eina kynslóð til baka. En síðan hefur hljóðlát bylting átt sér stað. Konur eru nálægt helmingur vinnuaflsins í Evrópusambandinu og eru einnig í vaxandi mæli að verða betur menntaðar en karlar. Nálægt 60% háskólamenntaðs fólks í Bandaríkjunum og Evrópu eru konur.

Þrátt fyrir þessa þróun fer því fjarri að hæfileikar kvenna séu að fullu virkjaðir. Konur eru aðeins 31% atvinnurekenda í Evrópu. Enn eru þær í minnihluta í hærri stjórnunarstöðum. Samkvæmt upplýsingum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er aðeins einn af hverjum tíu stjórnarmönnum í stærstu fyrirtækjunum kona. Þetta á við um fyrirtæki sem skráð eru í kauphöllum aðildarríkja ESB. Misræmið er mest í æðstu störfunum en meðal þeirra sem slíkum störfum gegna eru aðeins þrjú prósent konur. Hér miðar hægt jafnvel þó að rannsóknir sýni að meiri fjöldi kvenna í stjórnunarstöðum og góður árangur fyrirtækja fylgist að.

Á fundi okkar í Stokkhólmi ætlum við hlýða á reynslu hvers annars og ræða mismunandi leiðir að því marki að fleiri konur fáist til atvinnurekstrar og í leiðandi stöður. Svo mikið er víst að ef við leggðum okkur betur fram við að virkja að fullu möguleika kvenna á vinnumarkaði ykist þjóðarframleiðslan verulega um alla Evrópu. Skoðun okkar er skýr: Við höfum ekki efni á að láta slíkt framhjá okkur fara.

Annað viðfangsefni okkar í umræðunum í Stokkhólmi snýr að mikilvægum lýðfræðilegum umskiptum í samfélögum okkar og afleiðingum þeirra. Árið 1950 voru lífslíkur á heimsvísu um 46 ár. Nú hafa þær hækkað að meðaltali í 70 ár og nærri því 80 ár innan Evrópusambandsins. Hér er um ótrúlega þróun að ræða. Hún tryggir einstaklingnum lengri og ríkulegri ævidaga. Hún leggur hins vegar þungar byrðar á ríkisvaldið þegar saman fara lág fæðingartíðni og lífeyriskerfi sem þarfnast endurbóta. Æ færri af yngri kynslóðinni, sem stundar atvinnu og greiðir skatta, þurfa að bera uppi vaxandi fjölda eldri borgara.

Reynslan sýnir að í stað þess að hækka lífeyrisaldur megi hvetja eldra fólk til að vera lengur úti á vinnumarkaðinum. Margir eldri borgarar fagna þessu, sér í lagi þar eð margir þeirra búa við góða heilsu, jafnvel á áttræðisaldri. Málið snýst í raun frekar um að breyta viðhorfum og viðmiðum annarra aldurshópa í samfélaginu. Til að mynda mætti einnig athuga hvernig breyta má menntun og starfsframakerfum til að auðvelda fólki að hefja störf á nýjum vettvangi. Laga má vinnuskilyrði að þessu og gera vinnutímann sveigjanlegri.

Á leiðtogafundinum um framtíðarverkefni í norðanverðri Evrópu ætlum við að ræða öll þessi álitaefni í því skyni að stuðla að atorkusemi eldri borgara og samfélagi fyrir allar kynslóðir.

Af hálfu leiðtogafundar um framtíðarverkefni í norðanverðri Evrópu ætlum við að varpa ljósi á umrædd viðfangsefni, deila reynslu okkar og beina sjónum að tilraunum til að brjóta niður þá múra sem hamla því allt of oft enn þá að konur og eldra fólk fái svalað metnaði sínum í störfum sínum. Þetta eru viðfangsefni sem allt of sjaldan gefst tími til að ræða á alþjóðlegum samkomum.

Þetta eru viðfangsefni sem leiðtogafundur um framtíðarverkefni í norðanverðri Evrópu tekur til athugunar með einstæðum hætti. Boðskapur okkar er skýr – svörin skipta sköpum fyrir þann vöxt og samkeppnishæfni sem Evrópa þarf svo sárlega á að halda.


Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar,
Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur,
Andrus Ansip, forsætisráðherra Eistlands,
Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands,
Valdis Dombrovskis, forsætisráðherra Lettlands,
Andrius Kubilius, forsætisráðherra Litháens,
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs,
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands,
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra Íslands.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Konur og samkeppnishæfni Evrópu