Golf

Konur mega nú ganga í einn elsta og virtasta golfklúbb heims

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Átjánda flötin á St. Andrews er víðfræg.
Átjánda flötin á St. Andrews er víðfræg. vísir/getty
Skotar kjósa ekki bara um sjálfstæði sitt í dag heldur fór fram söguleg kosning á meðal meðlima The Royal and Ancient-golfklúbbsins sem á og rekur meðal annars hinn víðfræga St. Andrews-golfvöll.

Kosið var um hvort konur mættu ganga í klúbbinn, en í 260 ára sögu hans hafa konur aldrei fengið inngöngu. Royal and Ancient-klúbburinn er einn sá elsti og frægasti í heimi, en opna breska meistaramótið fer regulega fram á St. Andrews-vellinum.

Ríflega þriðjungur 2.400 meðlima klúbbsins kusu í dag og vildi yfirgnæfandi meirihluti þeirra taka konurnar inn. Af þeim ríflega 1.600 sem kusu sögðu 85 prósent já, en aðeins 15 prósent nei.

„Þetta er merkilegur og jákvæður dagur í sögu klúbbsins. Hann hefur þjónað golfinu vel í 260 ár og ég er viss um að svo haldi áfram. Þetta gerum við fyrir framtíð íþróttarinar, bæði fyrir konur og karla,“ sagði framkvæmdastjóri The R&A, Peter Dawson, eftir kosninguna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×