Innlent

Konur í meirihluta kirkjuráðs í fyrsta sinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
frá vinstri: Stefán Magnússon, sr. Elínborg Gísladóttir, Agnes M. Sigurðardóttir, Svana Helen Björnsdóttir og sr. Gísli Gunnarsson.
frá vinstri: Stefán Magnússon, sr. Elínborg Gísladóttir, Agnes M. Sigurðardóttir, Svana Helen Björnsdóttir og sr. Gísli Gunnarsson.
Nýtt kirkjuráð var kjörið á kirkjuþingi í dag. Í ráðinu sitja tveir fulltrúar vígðra og tveir fulltrúar leikmanna, kjörnir af þinginu, auk biskups Íslands sem er forseti kirkjuráðs.

Í ráðinu sitja:

Svana Helen Björnsdóttir, fulltrúi leikmanna, Stefán Magnússon, fulltrúi leikmanna, sr. Elínborg Gísladóttir, fulltrúi vígðra, sr. Gísli Gunnarsson, fulltrúi vígðra og Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sem er forseti ráðsins.

Þetta mun vera í fyrsta sinn sem fleiri konur en karlar eru í kirkjuráði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×