Bíó og sjónvarp

Konungur bandarísks gríns

Lilja Katrín Gunnarsdótti skrifar
Will á farsælan grínferil að baki.
Will á farsælan grínferil að baki.
Spéfuglinn Will Ferrell verður heiðraður á bandarísku kvikmyndahátíðinni Deauville í Frakklandi sem haldin verður frá 5. til 15. september.

Hátíðarhaldarinn Bruno Barde segir Will vera konung bandarísks gríns.

„Bandaríska kvikmyndahátíðin Deauville er, eins og nafnið gefur til kynna, hátíð fyrir alls kyns kvikmyndir, af hverju tagi og því er ekkert utan seilingar,“ segir Bruno.

Hann gengur svo langt að líkja Will við bandarísku gríngoðsögnina Jerry Lewis og segir þá báða alltaf hafa gengið of langt í gríni og því verið unun fyrir áhorfendur að fylgjast með.

Will sló fyrst í gegn í grínþættinum Saturday Night Live um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Síðan þá hefur hann leikið í myndum á borð við Old School, Anchorman: The Legend of Ron Burgundy, Talladega Nights, Stranger than Fiction, The Other Guys og Anchorman2: The Legend Continues.

Þá hefur hann tvisvar hlotið American Comedy-verðlaunin, tvisvar verið tilnefndur til Golden Globe-verðlaunanna og tvisvar til Emmy-verðlaunanna.

Hann er talinn tilheyra svokölluðum Frat Pack sem samanstendur af grínleikurum sem slógu í gegn seint á tíunda áratug síðustu aldar og snemma á 21. öldinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×