Körfubolti

Kóngarnir hafa áhuga á Del Negro

Vinny del Negro.
Vinny del Negro. vísir/getty
NBA-lið Sacramento Kings er í leit að nýjum þjálfara eftir að liðið rak Mike Malone um síðustu helgi.

Nú spyrst út að félagið ætli sér að reyna að semja við Vinny del Negro en hann er án starfs eftir að hafa verið rekinn frá LA Clippers síðasta sumar.

Tyrone Corbin var færður úr stöðu aðstoðarþjálfara í aðalþjálfara er Malone var rekinn og ekki er útilokað að hann fái tækifæri til þess að klára tímabilið.

Goðsögnin George Karl hefur síðan lýst yfir áhuga á starfinu og svo er hópur manna innan félagsins sem vill ráða Chris Mullin en Mullin er ekki sagður vera spenntur fyrir því að taka við liði á miðju tímabili.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×