Fótbolti

Kóngar norðursins með enn meiri yfirburði á nýjasta heimslistanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fagnar eftirminnilegum sigri á Englandi í  sextán liða úrslitum EM 2016 ásamrt Sverri Inga Ingasyni.
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fagnar eftirminnilegum sigri á Englandi í sextán liða úrslitum EM 2016 ásamrt Sverri Inga Ingasyni. Vísir/Getty
Íslenska fótboltalandsliðið er ekki bara besta landsliðið á Norðurlöndum samkvæmt nýjum FIFA-lista heldur það langbesta.

Íslenska hækkaði sig um eitt sæti á FIFA-listanum upp í 20. sætið og hefur aldrei verið ofar á heimslistanum. Yfirburðir Íslands meðal Norðurlandaþjóðanna jókst um fjögur sæti frá listanum sem var gefinn út í janúar.

Íslenska landsliðið er nú 24 sætum ofar en Svíar og 29 sætum ofar en Danir. Það er síðan 61 sæti í Norðmenn sem réðu einmitt Lars Lagerbäck á dögunum.

Sjá einnig:Formlega krýndir kóngar norðursins

Ísland hefur núna verið besta landslið Norðurlandanna á ellefu listum í röð eða síðan að íslenska landsliðið komst upp fyrir Svía á listanum sem var gefinn út í apríl 2016.

Ísland var aðeins einu sæti ofar en Svíþjóð á listunum í apríl, maí og júní 2016 en tók risastökk með frábærum árangri sínum á EM í Frakklandi 2016.

Ísland hækkaði sig um tólf sæti frá listunum í júní til júlí 2016 á sama tíma og Svíar lækkuðu sig um fimm sæti niður í það 35.

Sjá einnig:Metárangur Íslands staðfestur

Íslenska landsliðið náði síðan fyrst tuttugu sæta forystu á Svía á listanum í nóvember 2016 og á nýjasta listanum, sem var gefinn út í dag, er Ísland með 24 sæti forystu á næstbestu Norðurlandaþjóðina.  

Svíar duttu niður um þrjú sæti en halda samt öðru sætinu því Danir duttu niður um tvö sæti og eru núna í 49. sætinu.

Sjá einnig:Strákarnir búnir að ná stelpunum í fyrsta sinn í sögu FIFA-listans

Norðmenn hækkuðu sig um þrjú sæti milli lista og komust með því upp fyrir Færeyinga sem voru búnir að vera í fjórða sætinu á síðustu listum.

Finnar, sem eru með Íslandi í riðli, eru því enn í neðsta sætinu af Norðurlandaþjóðunum en finnsk landsliðið er í 97. Sæti eða fimmtán sætum á eftir Færeyingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×