Lífið

Konan sem lætur brjóstin skoppa í takt við Mozart fær morðhótanir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndband þar sem listakonan Sara X sést hreyfa brjóst sín í takt við verkið Eine Kleine Nachtmusik eftir Mozart hefur verið afar vinsælt á YouTube og horft hefur verið á það rúmlega 27 milljón sinnum.

Eftir að myndbandið sló í gegn fékk Sara sendar morðhótanir. Hún er hætt að lesa athugasemdir við myndbandið þar sem hún er kölluð hóra og drusla.

„Þó brjóst mín séu gervi er myndbandið alvöru. Ég er að spenna brjóstvöðvana sem verður til þess að púðarnir í brjóstunum hreyfast,“ segir Sara.

„Flestir sem hafa eitthvað neikvætt að segja um mig sem persónu halda að ég vildi bara sýna heiminum brjóst mín,“ bætir hún við.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×