Tíska og hönnun

Konan sem kyndir lampana sína

Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar
Dóra Welding er lyfjatæknir og húsfrú á Nesinu. Hún féll óvart kylliflöt fyrir páfuglslampanum og segir hann vera sinn uppáhaldshúsmun. Lampinn á innskotsborði í baksýn er úr Marco og jólastjarnan gleður enn með birtu sinni enda skilur Dóra alltaf eftir svolítið af jólaskrauti á milli hátíða.
Dóra Welding er lyfjatæknir og húsfrú á Nesinu. Hún féll óvart kylliflöt fyrir páfuglslampanum og segir hann vera sinn uppáhaldshúsmun. Lampinn á innskotsborði í baksýn er úr Marco og jólastjarnan gleður enn með birtu sinni enda skilur Dóra alltaf eftir svolítið af jólaskrauti á milli hátíða. myndir/gva
Frú Dóra Welding er fagurkeri af guðs náð. Í fögru húsi við sæinn blómstrar hún í litadýrð og rökkurbirtu haustsins og kveikir á ótal lifandi og logandi ljósum. Uppáhaldsljósgjafinn er forkunnarfagur páfugl sem minnir á seiðandi sólarlönd og kvakandi fuglasöng.



„Páfuglinn varð óvart á vegi mínum þegar ég laumaðist í uppáhaldsbúðina mína sem er Heimili & hugmyndir á Suðurlandsbraut. Ég má helst ekki fara þangað inn og varð auðvitað friðlaus því ég er svo hrifin af fuglum,“ segir Dóra, sem daginn eftir fyrstu kynni við páfuglslampann fór og festi á honum kaup.

„Ég taldi mér trú um að ég yrði að eignast blessaðan fuglinn enda hefur hann engan svikið og er uppáhaldshúsmunurinn minn og ofboðslega fallegur. Ég sit oft í dimmunni og stari á hann í vantrú yfir því að hann sé minn,“ segir Dóra sem kolféll fyrir íburðarmiklu stélinu og litnum sem passar vel við innviði heimilisins.

„Páfuglinn vekur ómælda athygli gesta og frá lampanum stafar töfrandi birta sem sendir heillandi bjarma upp í hátt stofuloftið. Þetta er svona ekta Homes & Gardens-lampi sem maður sér stundum punta dýrindis spænskar villur og er sannkölluð heimilisprýði.“

Saknar Fríðu frænku

Haustið er eftirlætisárstími Dóru; þegar rómantísk birtuskilyrðin kalla á lokkandi lampabirtu og blikandi kertaljós.

„Ég á þó nokkra lampa og er hrifnust af stórum og bosmamiklum hlunkum sem líka eru mublur. Á heimilinu eru sárafá loftljós en þeim mun fleiri vegg- og borðlampar og mér þykir gaman að setja lampa á hina skrítnustu staði, eins og á eldhúsborðið og á baðherbergið,“ segir Dóra í hlýlegu og heimilislegu húsi sínu.

„Stíllinn hér heima er blanda af nýju og gömlu og get ég beinlínis grenjað yfir fallegri antík. Ég sé því mikið eftir Fríðu frænku því eftirlætistómstundaiðjan mín var að hangsa þar í klukkutíma síðdegis og gramsa í gömlum hlutum.“ 

Þessar tvær grænu skipstjóraluktir fékk Dóra úr gömlu dánarbúi. Búið er að gera ótal eftirlíkingar af sams konar olíulömpum en þetta er upprunaleg hönnun og búið að leiða rafmagn í gegnum þungan koparinn. Lýsingin er dáleiðandi fögur þegar rökkvar og skapar notalega stemningu heima við.
Lampi úr skeljum og steinum

Innanhússhönnun er Dóru í blóð borin og er lýsing, ásamt styttum og glingri áhugamál númer eitt.

„Falleg birta skiptir öllu til að skapa rétt flæði á heimilum. Hugguleg birta hefur áhrif á stemningu og vellíðan og allt þarf það að vera í réttu samhengi. Þannig göngum við hjónin á eftir hvort öðru og skiptumst á að kveikja og slökkva því hann ber lítið skynbragð á uppröðun lampa og birtu á meðan ég vil hafa allt uppljómað og í réttri uppröðun,“ segir Dóra hláturmild. 

Hún segir enda fullt starf að kveikja og slökkva á allri ljósadýrðinni á degi hverjum.

„Ef ég er með heimboð þarf ég helst að fá aðstoð í klukkustund á undan til að kveikja á öllum kertunum og lömpunum sem kúra í styttu- og myndaflóði hér og þar um húsið. Það er líka hörkuvinna að halda þessu öllu skínandi hreinu og glampandi.“

Dóra er í essinu sínu um þessar mundir og segist titra af vellíðan þegar rökkva fer.

„Þá tek ég upp tuskuna til að þurrka af og tala við dótið mitt því ég elska að dunda mér heima og hlúa að heimilinu.“

Í bígerð er fyrsti lampinn úr hugarfylgsnum Dóru.

„Mig dreymir um að hanna eigin standlampa úr skeljum og steinum, í rjómalit og gráu, til að hafa inni á baði. Ég er nú þegar byrjuð að tína í hann efnivið þegar ég fer fjöruleiðina með hundana mína.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×